Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 96
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Fyrir slíkar sprengjur mundu fjarlægðir þær sem ég nefndi áðan allt að því
tífaldast.
Búast mœtti við algjörri eyðileggingu, og útrýmingu alls lífs allt að 10
lcm jrá sprengistaðnum, meiri og minni skemmdum á mannvirkjum í allt að
50 km fjarlœgð og banvcent magn af geislavirkum efnum gœti borizt með vindi
svo skipti hundruðum kílómetra.“
Úraníumsprengjan er aðeins móttvana hvellhetta
sjálfrar vetnissprengjunnar
Úraníumsprengjan, sem lagði japönsku borgirnar í eyði, er aðeins mátt-
vana hvellhetta sjálfrar vetnissprengjunnar. Ummæli Alberts Schweitzers
í útvarpserindi 29. apríl s.l. staðfesta hin tilfærðu orð prófessors Þorbjarnar:
„Sprengimáttar vetnissprengju gœtir á svœði, sem nœr svo tugum kílómetra
skiptir í allar áttir jrá sprengistaðnum. Hitinn kemst upp í 100 milljón stig ...
Banvœn geislunarsmitun jrá sprengingunni mun breiðast út um 115.000 fer-
kílómetra svœði.“
Slíkt er sem sagt þetta nýja leikfang, sem stórveldin hafa undanfarið keppzt
við að íullkomna sem mest. Sú leikfangagerð stendur með miklum blóma.
Eftirfarandi ummæli eru höfð eftir Krústjoff í samtali við sendiherra Kan-
ada í Moskvu og tilgreind í dálki Drew Pearsons í Washington Post í marz
1958:
„Bandaríkin og Sovétríkin eiga helmingi fleiri kjarnorkusprengjur en með
þyrjti til að drepa livert mannsbarn í heiminum.“
í útvarpsræðu í Oslo, 29. apríl s.l. hefur Albert Schweitzer svofelld um-
mæli eftir bandarískum hershöfðingja:
„Ef 110 vetnissprengjum vœri varpað á Bandaríkin með 10 mínútna milli-
bili myndu 70 milljónir manna liggja í valnum og nokkur þúsund fermílur
lands verða óbyggilegar í einn mannsaldur. Til þess að leggja í eyði lönd eins
og England, Vestur-Þýzkaland og Frakkland, myndu 10—15 vetnissprengjur
nœgja.“
Þó væri vanhyggja að halda að herveldunum nægði þetta dót að rísla sér
við. Það eru fleiri uppáhaldsleikföng í gullastokkunum. Þannig er skammt að
minnast þeirra tilrauna með sóttkveikjuhernað í smáum stíl, sem gerðar voru
í Kóreustríðinu. Og nýlega hefur yfirfjringi gashernaðardeildar Bandaríkja-
hers, William M. Creasy skýrt frá því í grein í Army Information Digest,
270