Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Side 107
FRIÐLÝST LAND
sóknanefndarinnar, dr. Thorsten Magnusson, lagði áherzlu á að í rauninni
vœru engin ákveðin takmörk fyrir hœttunni. Hann sagði að e. t. v. vœri þegar
komið yfir hœttumörkin.
Geislaverkun í loftinu yfir Noregi var meiri í marzmánuði en nokkru sinni
fyrr.
Rannsóknastofnun norska hersins sagði að geislaverkunin í marz hejði ver-
ið fimm sinnum meiri en liún var að meðaltali árið 1957 og þrisvar sinnum
meiri en nokkru sinni áður, síðan mælingar hófust.
Frá íslenzkum stjórnarvöldum hafa engar tilkynningar borizt um mælingar
á geislaverkunum hér á landi. Og á opinberum vettvangi er þögnin furðu þung
um þetta mál. Almenningur hugsar þó sitt. Og það er ekki að orsakalausu, að
fram koma getgátur eins og sú, sem varpað er fram í blaðinu Frjálsri þjóð,
23. maí s.l. En þar segir svo:
„Undanfarið hefur borið mikið á útbrotum á fólki hér á landi, sem læknar
hafa viljað flokka undir ofnæmi. Þetta lýsir sér í því, að rauðar bólur hlaupa
upp um allan líkamann. Fylgir þeim kláði, en þegar fólk klórar sér, hleypur
húðin upp í hvítleita strimla. Mikil óþægindi eru að þessu, en útbrotin virðast
illlæknanleg. Þau hverfa að vísu með slögum, en koma aftur og aftur. Hefur
fólk einkum viljað setja þau í samband við útivist. Þótt læknar hafi yfirleitt
reynt að stemma stigu við þessu með ofnæmislyfjum, hafa þau gert lítið gagn,
og stöðugt fjölgar þeim, sem kvarta undan þessu.
Á þessu stigi málsins verður ekkert fullyrt um orsakir þessara óvenjutíðu
útbrota á fólki, sem varla er hægt að telja til ofnæmissjúkdóms, þar sem slík-
ur sjúkdómur getur tæpast orðið að hálfgerðum faraldri. Sumum þykja senni-
legri þær getgátur, að rekja megi þetta til geislaverkunar í andrúmsloftinu, en
hún hefur stöðugt verið að aukast, frá því er fyrsta kjarnorkusprengjan var
sprengd í Japan undir lok síðustu heimsstyrjaldar.“
4. KAFLI
Varnarleysi er orðið eina hugsanlega vörnin
og varnarstöSvar eru ekki lengur til
„Eisenhower Bandaríkjaforseta varð að orði, er hann hafði fylgzt með
herœfingum með kjarnorkuhernaðarsniði, að ef til slíkrar styrjaldar kœmi,
yrðu allar varnir gagnslausar.“
281