Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 142

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 142
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR þurrkinn og uppreisnina. Og loks þegar uppskeran er komin í hús koma kaupmenn- irnir til skjalanna og skammta fólkinu verð- ið eftir eigin geðþótta. I öðrum sögum eru önnur viðfangsefni, árásir Japana á Sjang- liaj, upplausn og öryggisleysi hinna viðsjár- verðu tíma og margt fólk kemur þar við sögu. Þá er ein sagan þverskurður af starfs- fólkinu í opinberri skrifstofu. Sagan Nef- stór er skemmtileg saga af útigangsdreng og hvernig hann með seiglu og smáhrekkj- um dregur fram lífið í þeirri eymd og niður- lægingu sem milljónahorgin hafði upp á að bjóða fátækum og fyrirsvarslausum. Hd. St. Kamala Markandaya: Á ódáinsakri Einar Bragi Sigurðsson íslenzk- aði. Heimskringla 1958. Höfunduií þessarar skáldsögu er ung indversk kona. Hún byrjaði rithöfund- arferil sinn á því að skrifa fyrir blöð. A þeim árum kynntist hún kjörum öreigastétt- anna í landi sínu, í sveitaþorpum og í verk- smiðjum borganna. Þessi kynning hefur orðið henni sú reynsla sem knúði hana til að skrifa þessa sögu, því sjálf á hún til auð- ugra að telja. Sagan er í sjálfsævisöguformi. Ung kona giftist bónda og þau fara að búa á leigu- jörð. Húsnæðið er leirkofi með stráþaki og búsáhöld eftir því. En þrátt fyrir alla fátækt vinnuþrældóm og veikindi eru þau ham- ingjusöm. Böm þeirra eru mannvænleg, og þó regnið eyðileggi uppskeruna og þau hungri heilu hungri og eldingar skemmi leirkofann örvænta þau ekki. Manni finnst þetta örsnauða fólk sýna næstum ofurmann- lega stillingu og þol í raunum sínum. Það á ekkert annað en vinnuafl sitt og þegar upp- skeran bregzt verður sá fjársjóður í einu vetfangi að engu og ekkert er fyrir hendi annað en svelta þangað til jörðin gefur þessum börnum sínum aftur gróður sinn. Allt er svo frumstætt. Engar stofnanir til sem líkna hungrandi og deyjandi manneskj- um. Þær verða með þverrandi fjöri að heyja lífsbaráttuna við náttúruöfl og gróðafíkn landeigendanna. Sútunarverksmiðja er reist í þorpinu, hún veitir að vísu mörgum mönnum atvinnu, en hún kemur líka af stað árekstrum. Þegar verkamennirnir krefjast hærri launa eru þeir reknir og nóga aðra er hægt að fá í staðinn. Engin samtök verkamanna til að tryggja þeim sigur sem berjast fyrir bættum kjörum. Og í þessum átökum lætur einn sonur þeirra lífið. Dóttir þeirra er send þeim aftur af manni sínum af því hún fæðir honum ekki sonu. Og sparifé þeirra er stol- ið. Þannig er nóg um einkavandamál þessar- ar fjölskyldu auk þeirra mála sem sameigin- leg eru þessum öreigalýð. Og að lokum kemur svo endahnúturinn á þessa harm- sögu, þau eru rekin af jörðinni. Eigandinn getur selt hana hagstæðu verði, þau verða að víkja. Allslaus leggja þau af stað til borgarinn- ar til að flýja á náðir sonar síns. En hann er þá horfinn, enginn veit hvert. í musterinu, sem er hinn eini staður þar sem hungraðir öreigar fá gefins nokkur hrísgrjón til að seðja hungrið og að liggja á gólfinu, er stol- ið þeim fáu skildingum sem þau eiga. Þau eru strönduð hér og komast ekki heim aftur vegna peningaleysis. Eitt úrræði er eftir fyrir þessi sveitahjón sem kunna ekki neitt af störfum borgarinn- ar: grjótnámið. Þar reyna þau að aura sér saman fyrir ferðinni heim aftur og holds- veikur drengur leggur þeim lið með þekk- ingu sinni á þessum hlutum. En þetta verð- ur manninum ofraun, hann deyr úr skorti og sjúkdómi. 316
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.