Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Qupperneq 111
Bréf frá Paris
ígjær frá Rue Richelieu til Rue Faubourg St. Honoré Nr. 30. Hér hef eg tvö
herbergi fyrir 40 fr. um mánuðinn afþví það er í þessari götu. Bunzen færir
þér þetta bréf og líka stóra bréfiS. Hann fer héSan á morgun. Hönum hef eg
til heimferSarinnar léS fimmhundruS fránka. Eg segi þér þaS svona ef illa
kynni aS fara, svo þú vitir þaS; annars veit eg hann er áreiSanlegur maSur,
en margt kann til aS vilja. Setjum hann deyji á leiðinni og þá er gott einhver
á dönsku landi viti af því. HeilsaSu kjærlega löndunum og Rasmusi Nielsen.
Framvegis Finni Magnússyni; segðu honum eg skrifi honum þegar eg verð
búinn að skila bréfum til Gaimards, sem ennþá er í Marseille við völin.
HeilsaSu sömuleiðis Rafni og segðu honum eg muni skrifa honum þegar eg
er búinn að tala við La Roquette, sem líka er við völin í Marseille.
ÞaS er satt eg sá Thiers í gjærkvöldi; hann er lítill maður vexti, lítur
hyggilega út og er grár á hærur; þú rnanst hvað eg er mannglöggur, eg
þekkti hann af mynd hans og spurði so franskann mann, sem sat við hliðina
á mér, hvort það væri ekki Thiers, en hann játaði. SjáirSu Collin únga eða
Etatsr. Holm þá gætirðu vel heilsað þeim ástsamlegast frá mér.
Forláttu nú masið og blessaður skrifaðu mér nú rækilega góði! um allt
sem skeður og ekki skeður, satt og logið, aS heiman og úr Höfn og hvað sem
er.
Ef Bogi Thorarensen skyldi vera kominn til Hafnar, eða þegar hann kem-
ur, þá fáðu honum kvæðin hans föður hans sem liggja einhversstaðar í púlt-
inu mínu. Suhr hefir þá borgað þér peníngana er ekki svo? Ef eg skyldi fá
penínga að heiman, og ef þú skyldir geta verið án einhvers af þeim þá láttu
sjá, ef þú getur, þá reyndu, ef þú vilt, mátt, þorir eða ekki þorir, að láta mig
fá dálítið, þeir andskotans peníngar!
Mest yðrast eg eftir að eg tók ekki slobrokkinn minn með mér, því í vet-
urnar kvað slobrokkur vera hér nauðsynlegur. Heilsaðu frændfólki mínu
kjærlega frá mér og vertu nú blessaður og sæll.
LíSi þér altend sem best og ykkur öllum löndum
þess óskar
þinn
Grímur
P. S. Oft dettur mér í hug, hvað gaman þaS væri að sjá þig hér alt í einu á
Boulevarderne eða í Palais Royal. Seinna skal eg lýsa öllu hér betur fyrir þér.
Blessaður heilsaðu líka Krieger Professor kjærlega og segðu honum hann fái
bréf frá mér bráSum, hvort sem hann vill eða ekki.
333