Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Síða 113
Bréf frá París
inn að polemiséra kallinn við einhvorn L. Míiller) o. s. fr. Finni Magnús-
syni hef eg skrifað og sent honum öll póstskipsbréfin mín sem ekki eru mörg.
Eg hef verið hér síðan 12 Aug. svo þú sérð það er hart að vera ennþá ekki
búinn að fá neitt bréf og ekki svomikið sem kveðju. Eg skil heldur ekkert í
Búntsen, sem sagðist fara bein línis til Khafnar, lofaði að senda mér peníng-
ana strax þegar hann kjæmi þángað, og er ekki húinn að því enn. Ef hann er
nú dáinn á ferðinni, það er þægilegt fyrir mig. Reyndar hef eg skriflega við-
urkenningu hans, en það er þó óþægilegt að þurfa að rekast í þesskonar við
aðvokatinn bróður hans.
En — bíðum átekta, eg skrifa þér ekki ærlega línu fyrren eg er búinn að fá
lángt bréf frá þér, með fréttum að heiman etc. Ef þú sendir mér nokkur þús-
und ríkisdali, þá verð eg ennþá fegnari. Heilsaðu Sch(l)eisner og segðu hon-
um, að jeg hafi líka skrifað honum með Buntzen, sem fór héðan í kríngum
þann 20 Aug. og ætlaði til Hamborgar sjóleiðis frá Havre. Segðu honum
framvegis að eg hafi altaf einhverja bölvun í eyrunum, og eitlabólgu í hálsin-
um, enn sem Ravn læknir (frá Friðriksspítala) reyndar ekki heldur hafi neitt
að þýða, nema svosem ofkjælíngarveru einhverja; þó lætur hann mig drekka
joð.
Vertu nú sæll að interim, jeg vona jeg geti bráðum með fullum rétti skrifað
þér lengra bréf. . .
1 D Þmn
Grímur Þorgrímsson
(Rue Faubourg St. Honoré, Nr 30)
E S. Hefurðu fengið peníngana frá Suhr? jeg hef stundum ímindað mér
að það hafi brugðist og það sé þessvegna að þú sért svo reiður, og skrifir
aldrei. Eg sendi þetta bréf ekki gegnum legatiónina heldur með pósti til þess
það komist sem fyrst. Vertu sæll! og segðu mér hvar þú býrð í næsta skipti.
. 3. París, lsta Nóvbr. 46.
Petursson minn!
Þann 19da Okt. fékk eg bréf þitt, dagsett þann 3öja s. m., eins og eg sagði þér
um dagin í bréfinu með honum Stilling meistara, sem nú mun fyrir laungu
vera heim kominn. Eg var g. s. 1. búinn að skrifa um þig þrjú skammarbréf
áundan eitt til Finns, annað til Kriegers og þriðja til Jóns Sigurðssonar.
Krieger segir líka í bréfi til Brocks, kunningja míns — sem in parenthesi
biður að heilsa þér — að „Pjetursson lader til at være steenhaard“, hafðu
það. Heyrðu! það er nú gott og mikið gott að þú svaraðir mér loksins, enn
335