Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Page 123
Bréf frá París
Nokkrar skýringar
Grímur Thomsen hlaut meistaranafnbót fyrhr rit átt um Byron vorið 1845. Það sumaT
sigldi harm heim til Islands og ferðaðist um landið. Ari síðar veitti konungur honum
1200 rdl. styrk til að ferðast um Evrópu. Hann lagði upp í )iá feTð það saitía sumar og
skrifaði Brynjólfi Péturssyni no'kkur bréf á ferðalaginu, sem varðveitt eru í bréfasafni
hans í Kaupmanmahöfn. Alls eru rarðveitt 28 bréf frá Grími til Brynjólfs frá árabi'linn
1845—1850. Hið fyrsta er skirifað í Reykjavík lsta ágúst 1845, en það síðasta 5ta október
1850 í Briissel.
Bréfin, sem hér eru birt, eru öll skrifuð í París, en áður en til Parísar kom hafði
Grímur sbrifað eitt bréf frá Dresden 23ja júlí 1846, en þangað kom hann 20sta sama
mánaðar. Til Parísar kom Grímur 12ta ágúst og þaðan stTeymdn bréfin til Brynjólfs.
Þess má geta, að í Þjóðskjalasafni eru varðveitt bréf frá þessari Parísardvöl Gríms, sem
hann skrifaði Finni Magnússynd og Jóni Sigurðssynd og er þeirra getið í bréfunum tdl
Brynjólfs.
Hér verður ekki reynt að semija rækilegar skýringar, enda má fá fnekari upplýsingaT
um flesta þá menn, sem Grímur nefndr, í ýmsum uppsláttarbókum, svo að þeiraa verður
að litlu getiið. Um texta bréfanna er það að segja, að stafsetnin-gu og merkjasetningu
Gríms er haldið með þeim undantekmingum, að broddar og deplar era settir yfir stafi,
þar sem þá vantar í handriti Gríms. A stökiu stað hefir verið settur punktur á eftir máls-
grein, þegar ný setninig, sem byrjar á stórum staf, kemur á eftir.
I bréfum Brynjólfs til Gríms má firnna sivör við mörgu því, sem ber á górna í bréfum
Gríms og nægir að vísa til þess þar í eitt skipti fyrir öll.
Fyrsta bréf: Langgaard var ferðafélagi Gríms frá Kaupmannahöfn til Dresden. Moltke
er senmilega Frederik G. J. Moltke lénsgreifi. Teplitz er nú í Tékkóslóvakíu og hefir
skipt um nafn. Kryptkirkja er kapella undir aðalkirkju. Casematterne eru skotheld byrgi
í kastölum. Rotschild var auðkýfingur, d. 1812. Hann átti 5 synd, Amschel, sá elzti, átti
heima í Frankfurt am Main, hinir dreifðust út um Evrópu. Smedegangen . .. Pétur
Madsen voru þvergötur í Kaupmannahöfn, sem hétu réttu nafni Smedens Gang og Peder
Madsens Gang. kat’exokhen gr. og merkdr öðrum íramar.Sr.hwanthaler var þýzkur mynd-
höggvari uppi á fynri hluta 19du aldar. Þorvaldur er Bertel Thorvaldsen myndhöggt'ari.
Eruiin von Steinbach var þýzkur arkitekt d. 1318. Philistar vora þeÍT kallaðir, sem lásu
til annars lærdómsprófs (Examen philologico-philosophicum), því að þeir tóku pióf í al-
rnennri sögu. Isarnvegur er jámbraut. Bunzen var oand med. Ortwed var stiftpiófastur frá
HióaTskeldu. Courage mes enfants etc. merkir: „verið hughraustir, drengir míndr, þama
er leiðin til Bruxelles.“ Voilá les Anglais etc. tmerkir: „Þarna eru Englendingarndr, þeir
eru gl'alaðir." Blucher var herforingi prússnesba hersins. Grouchy var einn af herforingj-
um Napóleons. Ney var franskur hershöfðingi. Se glorifier roerkir að gorta eða stæna sig
af. Heloise ... Mortier; Abailard og Heloise voru uppi á 12tu öld. Hann var guðfræðingur
og einn djarfasti hugsuður sinnar samtíðaT, en Heloise var kona hans. Börne var þýzkur
rithöfumdur og blaðamaður, sem andaðist í París tæpum áratug áður en Grímur kom
þangað. Maussena á að Mkindum að vera Massónu. A. Masséna og E. A. C. J- Mortier
345