Tímarit Máls og menningar - 01.12.1969, Blaðsíða 132
Tímarit Máls og menningar
í, leiðöngrum á Vatnajökul næstum hvert ár og stundum tvisvar á ári og
verið meðritstjóri Jökuls og nú er ég formaður Jöklarannsóknafélagsins,
þess félags, sem stendur hjarta mínu nær en önnur félög, sem ég hefi starfað
í, því hvergi hefi ég starfað með jafn einhuga og ósérhlífnu ágætisfólki. Því
miður er ég ekki slikur dugnaðarjálkur sem fyrirrennari minn, Jón Eyþórs-
son, og er senn mál að mér yngri maður taki við stjóm fólagsins. En jökJa-
rannsóknir síðustu áratugina hafa raunar verið mjög tengdar rannsóknum á
eldstöðvum undir jökli, Grímsvötnum og Kötlu.
Þá langar mig til að koma aftur að öskulagatímatalinu. Það er undrunar-
vert þegar maður les tam. bók þína um gosið í Orœfajökli 1362, hvernig þú
vekur upp heila byggð í Örœfunum, reisir hvern bœ úr rústum, án þess að
hafa svo að segja nokkrar skrifaðar heimildir. Viltu ekki slcýra fyrir mér
í einföldu máli öskulagarannsóknir þínar, hvar þœr eru á vegi staddar og
eins gildi þeirra?
Oskulagarannsóknimar hafa í fyrsta lagi þann jarðfræðilega tilgang, að
rekja sögu eldfjalla, en hér á landi er saga virkra eldfjalla snar þáttur þjóðar-
sögunnar. í öðru lagi hefi ég beitt öskulagatímatalinu við ýmsar aðrar jarð-
fræði- og landfræðilegar rannsóknir, einkum á sviði landmótunarfræði, svo
sem til rannsókna á j arðvegseyðingu (uppblæstri), sem er enn eitt af megin-
vandamálum íslenzks landbúnaðar, og til könnunar á breytingum j ökla, en þær
eru einn af lyklunum að sögu loftslagsbreytinga. Ég hefi og aðstoðað fom-
leifafræðinga við ákvörðun á aldri flestra þeirra bæjarrústa, sem grafnar
hafa verið upp frá og með 1939. Tímatalsaðferðin tefrókrónólógía er í höf-
uðatriðum sú, að kanna í jarðvegi hin einstöku öskulög, athuga þykkt þeirra,
grófleika og önnur sérkenni, rekja þau til sinna eldstöðva og reyna síðan að
ákvarða aldur þeirra með hjálp sögulegra heimilda, svo langt sem þær ná,
en einnig með öðram aðferðmn, svo sem með geislavirku koli. Uppranalega
var ætlun mín að nota öskulögin einkum til aldursákvarðana í gróðursögu
landsins í sambandi við frjógreiningu í islenzkum mýram, en frjógreiningu
lærði ég af upphafsmanni þeirrar vísindaaðferðar, Lennart von Post, sem
var aðalkennari minn í jarðfræði. En mér gafst lítið tóm til frjógreiningar
hérlendis, hún er tímafrek. Óskulagarannsóknimar urðu takmark í sjálfu
sér og það varð annar íslendingur, Þorledfur Einarsson, sem tók upp þráð-
inn um frj ógreiningu með góðum árangri og kunni vel að meta og hagnýta
sér öskutímatalið. Nú hefur hann snúið sér að öðrum greinum jarðfræði og
enn er þörf á jarðfræðingum er vinna vildu að frjógreiningu, því þar er
354