Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Síða 7
Adrepur
sú heimsvaldastefna sem við hér á íslandi höfum orðið fyrir barðinu á og
þekkjum af eigin raun. Nei, þeirra höfuðóvinur er annar: sósíalheimsvalda-
stefna Sovétríkjanna. Fulltrúar KFÍ-ml á þinginu sögðu að stefnuskrá BGH
væri í andstöðu við stefnuskrá flokks síns og því gætu þeir ekki starfað með
hreyfingunni. Síðan hafa þeir í málgagni sínu, Stéttabaráttunni, boðað stofn-
un „samfylkingar gegn Sovétríkjunum“. Allur er málflutningur þessara manna
með eindæmum bernskur, eins og verða vill hjá aðdáendum moðhausakenn-
ingarinnar um risaveldin tvö. En til þess að forðast misskilning er vert að
geta þess að BGH er ekki stofnað til að vernda hagsmuni Sovétríkjanna eða
reka sovéskan áróður, langt í frá. Þótt höfuðandstæðingur hreyfingarinnar sé
sú heimsvaldastefna sem Lenín skilgreindi á sínum tíma: heimsvaldastefnan
sem hæsta stig auðvaldsins, er ekki þar með sagt að andstæðingarnir geti ekki
verið fleiri, ef svo ber undir.
BGH er ekki útibú neinnar ákveðinnar þjóðfrelsishreyfingar eða stjórn-
málasamtaka erlendis og lítur ekki á sig sem handhafa neins eilífs og endan-
legs sannleika. Markmið hreyfingarinnar er að kynna þá baráttu sem alþýða
heimsins heyr fyrir frelsi sínu og sjálfstæði allsstaðar þar sem heimsvalda-
stefnan á „hagsmuna að gæta“, en ekki að blanda sér í flokkadrætti á þeim
stöðum þar sem alþýðan ber ekki gæfu til að standa einhuga undir merkjum
einnar þjóðfrelsishreyfingar, enda væri slík afskiptasemi óneitanlega hláleg.
Formaður BGH er Örn Ólafsson, menntaskólakennari, en með honum í
stjórn eru þau Ingibjörg Haraldsdóttir og Gísli Pálsson.
I.H.
Skáldsagnasamkeppni
Mál og menning efnir til skáldsagnasamkeppni í tilefni af fertugsafmæli
félagsins. Skilafrestur er til 15. maí 1978. Sögurnar skulu merktar dulnefni
en nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi. Ein verðlaun verða veitt,
500.000 krónur, auk höfundarlauna sem nema 18% af forlagsverði bók-
arinnar að frádregnum söluskatti. Félagið áskilur sér rétt til útgáfu fleiri
skáldsagna en þeirrar sem verðlaun hlýtur og taki hugsanlegir samn-
ingar um þær bækur mið af rammasamningi Rithöfundasambands Is-
lands við útgefendur.
Dómnefnd skipa Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor, dr. Jakob Bene-
diktsson, Silja Aðalsteinsdóttir cand. mag. og Þorleifur Hauksson útgáfu-
stjóri Máls og menningar.
117