Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Síða 11
Mál og menning 40 ára
fé handa honum til þess að hann gæti verið í friði við að skrifa og
skipuleggja þetta, fórum til ýmissa sem við héldum að væru fúsir til
að leggja eitthvað af mörkum til þess að þetta kæmist út. Svo man
ég eftir því að löngu seinna sagði Kristinn mér að það eina sem hann
hefði fengið út úr þessari söfnun hefði verið það sem ég safnaði handa
honum. En samt sem áður var þetta svolítill styrkur, svo að hann gat
gefið sig að því að koma út Rauðum pennum, láta þýða og þýða sjálfur,
auk þess sem hann skrifaði um erlendar verkalýðsbókmenntir í fyrsm
bókina. Eftir að Mál og menning var stofnað varð hann framkvæmda-
stjóri og fékk einhverja þóknun fyrir það.
Hvernig gekk ykkur rithöfundum áður en Heimskringla og Mál og
menning voru stofnuð að koma bókum ykkar út?
Það var illt að koma út bókum, blessaður vertu. Til að mynda man
ég eftir því þegar Halldór Laxness gaf út Vefarann mikla frá Kasmír,
þá fékk hann áskrifendur. Bókin var gefin út í heftum. Eins var þegar
Salka Valka kom út, þ. e. a. s. fyrri hlutinn, Þú vínviður hreini, þá
ætlaði hann að fara eins að og byrjaði að safna áskrifendum að þeirri
bók. Svo talaðist einhvern veginn þannig til milli Jónasar Jónssonar og
Kiljans að Menningarsjóður tók útgáfuna að sér. En það voru ekki
allir sem áttu Jónas að og valt að treysta á hans hylli eins og dæmin
sönnuðu síðar. Heimskringla tók síðan við að gefa út bækur Halldórs
næsm árin. Stofnun Heimskringlu var auðvitað ákaflega brýn, bæði til
að koma út Rauðum pennum og ýmsum skáldverkum sem átm ekki greiða
leið á markaðinn. Að vísu ráku menn sig fljótlega á það að þrátt fyrir
feykilegan áhuga var efnahag fólksins þannig farið að margir hverjir
höfðu blátt áfram ekki ráð á að kaupa þessar bækur. Ekki fyrr en Mál
og menning kom til skjalanna. Það þarf ekki annað en líta á fyrsm
árganga Tímarits Aíáls og menningar til að sjá hvert bókahungrið var
hjá alþýðu manna á þessum tímum.
Það er svolítið erfitt að átta sig á tengslum Heimskringlu og Máls
og menningar í upphafi fimmta áratugarins. í Tímaritinu 1942 er sagt
frá því að forlagið Heimskringla hafi gengið inn í Víkingsútgáfuna, en
Mál og menning hafi keypt bókaverslunina, og 1945 kemur fram að
Mál og menntng hefur keypt Heimskringlu aftur á miðju undanfarandi
sumri.
Já, þetta mun hafa stafað af því að það gekk hræðilega með fjárhag-
inn og þá tók Ragnar í Smára að sér að gefa út bækur Heimskringlu.
121