Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 13
Mál og menning 40 ára fréttir sem þar birtast frá Máli og menningu hefur maður á tilfinning- unni að þettta hafi ekki verið mjög lýðræðislegur félagsskapur. Félags- ráðið var sjálfskipað eins og þú sagðir áðan og endurnýjun hjá ykkur innan þess virðist hafa verið hceg að ekki sé meira sagt. Já, það var ekki kosning nema þegar einhver dó. Stjórnin var lengstaf alltaf sú sama, framkvcemdastjóri líka og rit- stjórn Tímaritsins. Heldurðu að þetta hafi verið til góðs eða illsP Ég veit það ekki. Þetta ráð lét nú aldrei til sín taka. Það var stofnað, eins og Kristinn segir í Tímaritinu, í því skyni að „hlaða um félagið sterkari varnargarð mikilsmetinna áhugamanna í Reykjavík, sem ekki vilja þola að þetta menningartæki íslenzkrar alþýðu sé ofsótt né starfsemi þess hnekkt.“ Þarna voru þekktir menntamenn og rithöfundar. Ég held að þetta hafi haft sín áhrif og ráðið hafi ekki þóst gegna öðru hlutverki en því að vera þarna eins konar verndarmúr. Ekki var vanþörf á því. Til Kristins báru allir fullt og óskorað traust. Ef ráðið hefði litið á það sem hlutverk sitt að marka einhverja stefnu hefði sjálfsagt verið ástæða til að endurnýja það eitthvað ár frá ári. Kannske er kominn tími til þess núna, ég veit það ekki. Það mun hafa verið fullyrt í blaðagrein nýverið að Mál og menning, Bókabúðin, Heimskringla o. s. frv. séu allt eignir Alþýðubandalagsins. Hafa einhvern tíma verið tengsl, fjárhagsleg eða skipulagsleg, milli flokksins og þessara fyrirtcekja? Nei, þau hafa aldrei verið. Það bar aldrei á neinum áróðri né öðru þess háttar og það hafa aldrei verið nein tengsl milli Máls og menningar og þessa flokks. Ég hef aldrei orðið var við það. Sumir þykjast hafa komist á snoðir um að þessi flokkur vildi ná undir sig forlaginu. Aldrei varð ég var við það. Ég skal ekki segja hvað hefur gerst síðan ég fór úr leik, en ekki hef ég trú á því. í þessum félagspistli Kristins í Tímaritinu 1940, sem þú vitnaðir til áðan, talar hann um fjandsamlegan áróður sem rekinn hafi verið gegn Máli og menningu og harða samkeppni. Var félaginu einhvern tíma hœtta búin af utanaðkomandi árásum? Já, það var náttúrlega mikið unnið gegn okkur, sérstaklega Jónas frá Hriflu, hann varð alveg vitlaus. Annars voru það skuldirnar sem fóru verst með félagið, ekki keppinautarnir. Fljótlega eftir stofnun Máls og menningar réðst Jónas á félagið í Tímanum í einhverjum langhundi um að kommúnistar væru farnir að gefa út áróðursrit um kommúnisma 123
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.