Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 16
Tímarit Máls og menningar sjónhring alþýðu manna með því að gefa út þýðingar á öndvegishöf- undum erlendum t. d. nóbelsskáldum. Þá vildu þeir gefa út fræðirit á ýmsum sviðum og höfðu brátt meðal annars í undirbúningi samn- ingu og útgáfu margra binda verks um íslenskan menningararf. Af ýms- um ástæðum varð minna úr sumum hugmyndum, en þó komst margt í framkvæmd, í rauninni undramargt. Það væri langur listi, ef telja ætti upp allar þær ágætu bækur, sem félagið hefur gefið út á undanföm- um fjörutíu árum, og margar þeirra, ef ekki flestar, hefðu ekki komist í hendur íslenskra lesenda nema fyrir framtak félagsins. Þar mætti t. d. nefna hið stóra safnrit um heimsmynd vísindanna, Undur veraldar. Það var mikill fengur fróðleiksfúsu fólki, enda sjálfsmenntun þá enn lifandi vemleiki á Islandi. Fyrstu árin voru Rauðir pennar ársrit félagsins, en jafnframt var gefið út lítið tímarit, Mál og menning, stundum kallað „litla tímaritið“, aðallega ætlað sem tengiliður milli stjórnar og félagsmanna. Það er skemmtilegt að blaða í þessu litla riti nú og rifja upp, hve sambandið milli stjórnar og félagsmanna var náið. Stjórnin gerði skilmerkilega grein fyrir rekstri félagsins, vandamálunum, sem við var að etja, hug- myndum sínum um eflingu félagsins, um skáldrit og fræðirit, er hún hefði hug á að gefa út, og óskaði eftir umsögnum og hugmyndum félagsmanna. Þarna skapaðist á skömmum tíma hið ákjósanlegasta sam- band byggt á gagnkvæmu trausti og samhug. Stjórninni barst fjöldi bréfa frá félagsmönnum. Þetta voru hlý og skemmtileg bréf. Nokkur sýnishorn þeirra voru birt í tímaritinu. Ekki voru liðin nema tvö ár frá stofnun Máls og menningar, þegar afturhaldsöfl fóru að fá þungar áhyggjur af hinni undraverðu velgengni félagsins. Frumkvöðlar þess og forusmmenn voru sósíalistar, og enda þótt bækurnar, sem félagið hafði gefið út, væru algerlega ópólitískar, var þó ársrit félagsins, Rauðir pennar, með greinilegum pólitískum lit. Gera mátti ráð fyrir, að stór hluti hins kreppulúna fólks, sem Mál og menning náði til, mundi losna undan áhrifavaldi afturhaldsaflanna og ekki skila sér í kosningum. Var ekki vá fyrir dyrum, ef félagið fengi óhindrað að eflast áfram? Jú, vissulega. Því að ekki getur yfirstétt tryggt sér meirihluta á alþingi og þar með tök á ríkisvaldinu, nema alþýðu- atkvæði komi til í stórum stíl. Bókaútgáfa menningarsjóðs fékk það hlutverk að keppa við Mál og menningu um útgáfu ódýrra bóka, reynd- ar með fjárframlögum af almannafé. Þetta tiltæki reyndist vindhögg, 126
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.