Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 25
Hallormsstaðarbréf sjálfan Lagarfljótsorminn. Óðar og þú fórst suður til að styðja við signar axlir á ríkisstjórninni tók Sigrún við af þér að þeysa með okkur um héraðið, fór með okkur upp á ofurhátt fjall og sýndi okkur veraldar- dýrðina hið neðra, en áður en sagt yrði: allt þetta skal ég gefa ykkur, skall á ofsarok og myrkvaðist fyrir sólu svo að við björguðum okkur aftur til byggða. Þess verður að geta að þriðji farþegi var í bílnum, mexíkani að sögn Sigrúnar, sem annaðhvort hafði borist hingað til lands með Golfstraumnum eða Sigrún með einhverjum hætti heillað hann til sín, svo mikið var víst að hún laust upp fagnandi sigurópi þegar hann kom í skóginn og voru með þeim miklir dáleikar. En hvort sem henni varð eigi um sel á fjallinu eða ekki, þá losaði hún sig við farþeg- ann er á þjóðveginn kom, og urðum við hans ekki vör eftir það. Birti nú aftur í lofti og var keyrt inn í tröllslegan afdal fjöllum luktan og ægifagran eins og sagt er í skáldskap og fellur eftir dalnum á ein sem ekki er vatn í svo sem frægt hefur orðið, en við sluppum heil heim úr þessu ferðalagi. Nú fórum við að hafa betur augu á Sigrúnu og styrktumst í þeim grun að hún væri ekki öll þar sem hún er séð fremur en faðirinn. Þú veist hvað velferðarríkið og æskan sem það hefur mótað er altekið ver- aldarhug og að því er ég hélt læknað af sjúkdómi hinna eldri kynslóða, með trúnni á Þorgeirsbola, huldufólk og álfa, og þar með auðvitað heil- brigða sál í hraustum líkama, og við litum á dóttur þína sem háblóma þessarar velferðaræsku, einskonar uppvaxandi rauðsokku með framkvæmd- arstöður á hverjum fingri, verslunarstjóra undir sér, umboð fyrir olíu- hring, bankaviðskipti og tékkhefti upp á vasann: sjálft sigurtákn vel- ferðarríkisins. Hvernig átti okkur að detta í hug að svona stúlka og það hátt á menntabrautinni legði eyru við neinu dulrænu eða ætti ein- hver leynigöng inn í huldubyggðir, eða væri ekki í alla staði mennsk? En fyrstu efasemdirnar vöknuðu er við komum út á hótel og sáum þar myndir á vegg eftir Sigrúnu. Liggur þá veilan enn í ættinni? hugsaði ég og fór að rifja upp Tóníó Kröger. Og það varð stöðugt meiri sveim- ur að bænum og mestur kringum Sigrúnu. Hún kynnti þetta aðstreymi fyrir okkur ýmist með ljósum eða óljósum hætti: Bensi, Jónsi, kennari minn úr Reykjavík, vinkona mín úr Kópavogi, æskuvinur af þessum og þessum bæ, skógræktarnemi frá Mexíkó. Við kynntumst Bensa og Jónsa og vissum að þeir voru raunverulegir, a. m. k. á daginn, því að við sáum þá við vinnu sína og tókum þá stundum tali. En best gæti ég trúað að 135
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.