Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Blaðsíða 27

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Blaðsíða 27
Hallormsstaðarbréf ast betur skóginum. Auðvitað höfðum við komið í skógræktarstöðina og Sigurður frætt okkur á að þar væri trjágróður af flestum tegund- um á norðurhveli jarðar, og við óskað eftir leiðsögn hans um staðinn. Og einn dag tekur Sigurður okkur eins og tvö lítil börn við hönd sér og leiddi okkur í lundinn, svo að talað sé á máli þjóðkvæðanna. I fyrstu var allt mjög kunnuglegt, minnti eins og á velferðarríki nútímans með uppeldisstofnanir, fóstrur, dagheimili og hvaðeina, jafnvel vöggu- stofur fyrir litlu krílin, og farið þar á ofan að tala viðskiptamáli, svo að féllu á okkur ískaldir dropar, hrollköld orð eins og nytjaskógur, Reykjavíkurmarkaður, en þó held ég við höfum losnað við að heyra tannbrjótinn þroskaþjálfi. En fegurðin sem við þráðum fór nú brátt að segja til sín er Sigurður leiddi okkur úr einum lundi í annan og kynnti fyrir okkur ættmeiði trjánna, ýmist þá er ráðið höfðu hér ríkjum frá ómuna tíð, eins og birkið okkar fagra og góða, eða aðra af erlendum uppruna og hinum göfugustu ættum, blágrenið, fjallaþininn, lerki og lindifuru, og við heyrðum raktar ættir eins og í Landnámu gömlu, og þegar við litum upp sáum við að allt stóð heima að landið var skógi vaxið milli fjalls og fjöru, og fór nú ekki ólíkt og þegar þú vaktir upp fólkið á bæjunum, að tímans bönd brustu og við vissum varla hvort heldur við værum að hlusta á Ara fróða eða Sigurð, en þegar við átt- uðum okkur aftur, varð okkur þó ljóst að aldrei höfðum við í Islendinga- sögum heyrt ættir raktar jafn langt, hvorki í austur né vesmr, og ekki hefði orðið mikið úr þeim Ara eða Sæmundi ef þeir hefðu átt að fara að greina sundur ættir og afbrigði trjáa sem hér liðu fyrir augu, eða hvað hafa þeir vitað um lerki eða lindifuru, eða þann mun að hafa fimm fræfla en ekki tvo, og af því drógum við þá ályktun að Sigurður hlaut að vera að blaða í nýrri Landnámu sem hann hafði sjálfur skrifað, og við urðum æ heillaðri af frásögn hans og oft var sem tréin sjálf gripu inn í, og þó að hjá sumum þeirra mætti heyra dulinn söknuð í hjart- anu eftir heimahögum í Alaska eða Altaifjöllum, áttu þau varla orð til að lýsa því hve þau yndu sér vel hér á Hallormsstað. Og nú fór unað- ur um okkur sjálf að vera komin inn í lifandi heim, hina fögru veröld, ef til vill sjálft framtíðarríkið, og við sáum herskara trjánna og hin elstu þeirra og hávöxnustu fórnuðu upp greinum og blöðum, eins og í bæn til sólar og hins heiðskæra himins, og öldungis urðum við frá okkur numin er ungviðið í brekkunum og þar á meðal tugþúsundir lerkitrjáa breiddu faðminn á móti okkur, öll hin fagurlimaða æska 137
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.