Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 45
Lýst er eftir Pétri Péturssyni verkamanni
Tími
Lifandi vatnið er þroskasaga Péturs Péturssonar. Fyigst er með bernsku,
uppvexti og fyrstu manndómsárum hans. Síðan hittum við Pétur aftur
fyrir hálffimmtugan og erum honum samferða í tvo, þrjá daga.
Það kemur fram að um sama leyti og Pémr er að vaxa upp úr ferm-
ingarjakka sínum (bls. 110) tekur kreppan að gera vart við sig (bls. 105)
og þess vegna má álykta að Pétur sé kominn af barnsaldri um 1930. Þeg-
ar Pétur giftist er heimsstyrjöldinni síðari ekki lokið.
... Lilju langar ekkert til að búa í sveit. Hún er ekkert hrædd við loft-
varnarmerki, og stríðið er bráðum búið, það segja allir.
(164)
Stríðinu lýkur á fyrstu hjúskaparárum Pémrs. Þar er horfið frá hinni
tiltölulega samfelldu frásögn af ævi hans og hlaupið yfir u. þ. b. mtmgu
ár. Þegar við hittum hann aftur er hann orðinn miðaldra og á trúlofaða
dótmr. Það er líklegt að nútími sögunnar, þeir tveir, þrír dagar sem
Pémr er á flóttanum, sé sjöundi áramgurinn.
Efnalegur veruleiki
Bernskuheimur Péturs er sveitin. Foreldrar hans eru fátækir bændur
og fjölskyldan lifir á afurðum jarðarinnar. Hluti framleiðslunnar er
seldur og mikið velmr á að sæmilegt verð fáist fyrir hana.
Og hvernig verður það, ef kaupið heldur áfram að hækka og kjötið og
mjólkin að lækka?
(86)
Mjólkin og kjötið eru seld í nálægan kaupstað þar sem öreigar eru
að berjast fyrir hærra kaupi. Þar er meirihluti manna í vinnu hjá
fáeinum „höfðingjum“ og dregur fram lífið við eyrarvinnu og sjósókn.
... höfðingjarnir í kaupstaðnum, sem eiga húsin og skipin og bryggjurnar...
(84)
Þessar stéttir byggja þjóðfélagið sem Pémr elst upp í: sjálfseignar-
bændur eins og foreldrar hans, öreigarnir í kaupstaðnum og höfðingjarnir
eða auðvaldið.
155