Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 48
Tímarit Máls og menningar
og falla í ljúfa löð, illum er refsað, dauðir eru látnir rísa upp — sam-
ræmi tilverunnar er endurreist.
Umsköpunarþörf sköpunarverksins
Smám saman fjarlægist heimur ímyndunaraflsins og raunheimurinn nær
fastari tökum á Pétri. Um leið og „veröld undir skemmuvegg“ (bls.
67) hættir að vera tiltæk fer drengur að finna fyrir ósamræminu milli
þess sem honum er innrætt og hins sem hann reynir.
Mamma segir: Þú mátt ekki óvirða sköpunarverkið, stúfur. Síðan gengur hún
út undir vegg og hrærir í blóði heimalningsins. Amma segir: Guð skapaði
rikan og fátækan, voldugan og vesalan, allir eru jafnir fyrir honum. Þú
mátt ekki öfunda þann, sem meira hefir af veraldargæðum, Pési minn. Guð
sér um sína. Síðan taiar hún um höfðingjana í kaupstaðnum niðri á
Eyrinni, hvernig þeir níðast á fátæklingunum og gleðst yfir því hvernig
þeir verði niðurlægðir í öðru lífi en fátæklingarnir upphafnir. Pabbi segir:
Þú verður að vera iðinn, duglegur og samvizkusamur, Pétur. Iðni, dugn-
aður og samvizkusemi eru leiðin til velmegunar í lífinu. Síðan talar hann
við gestinn um kaupmennina og embættismennina, sem aldrei vinna ærlegt
handtak en eiga samt hús, peninga, skip og fólk, sem vinnur fyrir þá.
(83)
I þessari tilvitnun er drepið á nokkra mikilvæga þætti tilverunnar þar
sem hugmyndafræðin, sem hinir nánusm innræta Pétri, stangast illi-
lega á við reynslu hans. I sögunni er þetta séð með næmum augum
drengsins en ekkert bendir til þess að fullorðna fólkið, sem gerist sekt
um þessa ósamkvæmni, komi sjálft auga á hana. Osamræmið milli orða
og gerða er ekki sama eðlis í öllum dæmunum. Þegar móðirin innrætir
Pétri virðingu fyrir sköpunarverkinu og fer síðan út til að hræra í blóði
heimalningsins sýnir atferli hennar andstæður sem eru lögmál náttúrunn-
ar á sama hátt og „dauðinn í lifandi vatninu“, eitthvað sem menn verða
að lifa með. I hinum dæmunum er annað uppi á teningnum. Hugmynda-
fræðin, sem þar er haldið að Pétri, á rætur að rekja til yfirstéttarinnar
og það er ástæðan fyrir harkalegum árekstri hennar við veruleika þeirrar
lágstéttar sem Pétur tilheyrir. Samkvæmt söguskoðun Marx er það ríkj-
andi stétt sem mótar hugmyndafræði hvers samfélags, meðvitað og ó-
meðvitað. Hugmyndir lágstéttarinnar um sjálfa sig og þjóðfélagið í heild
eiga upptök sín hjá yfirstéttinni. Það leiðir af sjálfu sér að hugmyndir
158