Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 49
Lýst er eftir Pétri Péturssyni verkamanni yfirstéttarinnar eru henni í vil og að útbreiðsla þessara hugmynda stuðlar að óbreyttu þjóðskipulagi. Að baki siðareglum ömmu um að taka mis- skiptingu auðæfanna með stillingu og án öfundar býr kenningin um að ríkjandi þjóðfélagsskipan sé sett af guði og hafin yfir breytingar. Og þótt amma geti á stundum ekki orða bundist yfir óréttlætinu sem fá- tæklingar eru beittir þá miðlar hún Pétri ekki þessari réttlætiskennd heldur hugmyndafræði yfirstéttarinnar um eilífðareðli stéttaþjóðfélags- ins. — Dyggðirnar sem faðirinn innprentar Pétri, „iðni, dugnaður og samvizkusemi“, eru vel til þess fallnar að halda lágstéttarfólki kyrru í sinni stétt. Faðirinn er sjálfur dæmi þess, hann hefur stundað þessar dyggðir um ævina og honum hefur haldist vel á fátækt sinni. Kenningin um að velmegun fylgi í kjölfar þessara dyggða er þess vegna í andstöðu við veruleikann. Orðin, sem faðirinn missir út úr sér um höfðingjana, standa nær staðreyndunum en opinberi sannleikurinn sem hann matar son sinn á. Hér er því um að ræða falska vitund lágstéttarfólks eins og í dæmi ömmu en henni geta menn ekki varist nema þeir berjist stöðugt og meðvitað gegn henni. Hún geymir nefnilega hugmyndir ríkjandi stéttar og þær hljóta alltaf að vera lágstéttinni í óhag. Nátengd hugmyndinni um guðlegt upphaf misskiptingar auðæfanna, eins og amma lýsir því, er hugmyndin um almáttugan, algóðan guð. Amma innrætir Pétri þá gagnrýnislausu afstöðu sem felst í trúarbrögð- unum. Guð sér hverjum einum fyrir því sem hann þarfnast. Lítið til fuglanna í loftinu, enginn, ekki einn einasti þeirra fellur til jarðar án vilja guðs. (94) Ósamræmið á milli hörku náttúrunnar og almættis algóðs guðs er látið liggja í þagnargildi. Misræmið leitar þó á Pétur. Hann sér smáfugl- ana deyja á vorin, kynnist náttúruhamförum og slysum. Allt er þetta ósamrýmanlegt trúarbrögðunum en menn sætta sig við það og það gerir þeim lífið stundum auðveldara en ef þeir höfnuðu trúarkenningunum. Eins og fram kom hér að framan í umfjölluninni um stéttaskiptingu þjóðfélagsins þá nær áhrifasvæði trúarbragðanna ekki bara til náttúrunnar heldur einnig mannlífsins. Guðstrúin gerir lítið úr mætti mannsins til að hafa áhrif á umhverfi sitt, hins vegar segir reynslan að breytni manna hafi áhrif. 159
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.