Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Síða 55
Lýst er eftir Pétri Péturssyni verkamanni
ýmsu þættir lífsins einangrast hver frá öðrum. Aðalskiptingin er milli
opinbers lífs og einkalífs. Undir opinbert líf flokkast stjórnmál en hjóna-
band og fjölskyldulíf undir einkalíf. Oll tengsl á milli þessara sviða eru
dulbúin og látið líta svo út sem þau séu hvort öðru óviðkomandi, sbr.
það hvernig stjórnmálaumræður eru t. d. bannlýstar á mörgum heim-
ilum. Þessi einangrun hinna ýmsu þátta lífsins gerir það að verkum að
Pétur getur flúið frá félagslegum vonbrigðum sínum inn í griðland hjóna-
bandsins. Innan heimilisins getur hann haft mótandi áhrif sem veita
honum eins konar uppbót fyrir áhrifaleysi hans í opinberu lífi, a. m. k.
um stundarsakir.
Tvö og tvö uppgötva sannleik viðhaldsins eins og undur, sem enginn hefir
uppgötvað áður. Síðan skapa þau heimili... tímgast, ala og vernda afkvæmi
sín, og innan lítillar stundar er þeim þokað til hliðar, hlutverki þeirra lokið,
sannleikur þeirra engin sannindi framar...
(34—35)
Lilja samþykkir frá fyrstu stund heils hugar hina borgaralegu einangrun-
arstefnu. Markmið hennar er að gera heimilið að lokuðum heimi þar sem
veröldin fyrir utan skiptir ekki máli. Hún er sér lítt meðvitandi sem
samfélagsvera en þeim mun fyrirferðarmeira verður einkalífið. Ham-
ingjan í sambúð þeirra Péturs er undir því komin að allir aðrir séu
útilokaðir.
Og Lilja gerir þessa óvistlegu kjallaraholu að svolítilli paradís í miðju heims-
myrkrinu, notalegu, hlýju afdrepi, lýstu af glöðum og bjartsýnum hlátri
hennar og trú á þá hamingju, sem aðeins þeim tveimur getur hlotnazt.
(165)
Vinnan fyrir fjölskyldunni er svo mikill þáttur í lífi Péturs að ekkert
rúm er fyrir vangaveltur um þjóðfélagsmál. En undir niðri býr vitundin
um erlendan her í landinu eins og dulin meinsemd. Þessi vimnd þrýstir
á og leitar útrásar þrátt fyrir hamingjusamt einkalíf hans. Hann reynir
að ræða þessi hugðarefni við konu sína. En Lilja hefur engan áhuga á
stjórnmálum, hún er einkalífsmanneskja og vill ekki ræða annað en
einkalíf og einkahamingju. Að vísu hlustar hún á hann þegar hann seg-
ir frá hugsunum sínum en hlustar í þögn, þögn sem Pétur túlkar sem
skilning. Sjálfum finnst honum erfitt að tjá sig við hana en treystir því
165