Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 104
Tímarit Máls og menningar um landið. Slíkum hlutum reyna menn að gleyma, bæla þá niður. En þetta er ein hliðin á íslenskri sveitamenn- ingu. Og kannski skiljum við ekki þær, sem bjartari voru, nema muna eftir þessari líka. Tryggvi byrjar frásögnina á því að gera grein fyrir uppruna foreldra sinna og æviskeiði, einkum rekur hann nokk- uð rækilega sögu föður síns, og raunar föðurmóður líka. Mikill fróðleikur og aldarfarslýsing felst í þeirri sögu. Það segir sína sögu um þjóðfélagsaðstæður að atgervismaður, eins og Emil Peter- sen virðist hafa verið, með búfræðings- mennmn skyldi verða að lúta að svo lágu fyrir sig og börn sín sem raun bar vitni. Ekki skortir neitt á sonarlega ræktar- semi Tryggva en þó leynir sér ekki að honum finnst faðirinn hafa gefist upp gagnvart öllu því mótlæti sem yfir hann hafði gengið. Ekki dæmir hann föður sinn fyrir þetta heldur finnur skýring- arnar í kjörum og aðstæðum, ekki síst í þeim atburði er foreldrar hans urðu að hrekjast burt úr Borgarfirði, þar sem þau hefðu bæði viljað vera, og síðan í dauða móðurinnar, Þuríðar Gísiadótt- ur, frá mikilli ómegð. Kannski forlaga- trú hafi átt þátt í að draga kjarkinn úr Emil eða sætta hann við örlög sín. Eftir því sem líður á sögu Tryggva og honum eykst vitund og skilningur á því sem í kringum hann gerist verður frásögn hans persónulegri og eftirminni- legri. Honum hefur tekist prýðilega að flétta saman annars vegar lifandi og fjörlegum lýsingum á ytri aðstæðum og atburðum, vinnubrögðum þess og hugs- unarhætti, en hins vegar endursköpun sinna eigin viðbragða og tilfinninga á barns- og unglingsaldri. Það er einmitt í samfléttun þessara tveggja meginþátta og samvirkni sem gildi bókarinnar er umfram allt fólgið. Frásögn Tryggva rís af grunni svo nefndrar þjóðiegrar íslenskrar frásagn- arlistar. Einhvers staðar að baki þeirri list býr hin munnlega frásögn af minn- isstæðu fólki og atburðum en um langt skeið hefur hún verið ritlist fyrst og fremst og fengið af því mörg einkenni. Tryggvi kann vel að fara með hefð- bundin minni þessarar listar svo sem að segja frá erfiðum ferðalögum og yfir- náttúrlegum viðburðum. Einkum er eft- irtektarvert hve haglega hann fléttar náttúrulýsingar inn í frásagnir sínar. Slíkt efni er vandmeðfarið þar sem því hættir til að gera frásögnina of ljóðræna og svifaseina en þeirra galla gætir ekki að neinu marki hér. Hins vegar fer Tryggvi í minningum sínum langt út fyrir þau mörk sem þjóðlegri frásagnarlist eru venjulega sett. Það er einkum í lýsingum á átakanlegri reynslu. Mætti nefna tii mörg dæmi en ég held mér sé eftirminnilegust frásögnin um Emilíu hálfsystur hans og samskipti þeirra þann tíma sem hún lifði. Hér eins og víðar tekst Tryggva að fjalla um mjög persónulega og átakanlega reynslu á opinskáan hátt án þess að væmni gæti í frásögn hans eða lýsingum. Ann- ar þáttur sem mér finnst sérstaklega vel gerður er lýsingin á því hvernig Tryggvi lifir og þroskast í eigin hugarheimi á árunum á Gili, þeim áhrifum sem nátt- úran og athugun á lífi dýranna hefur á hann. Stíll Tryggva er fremur skrúðmikill og hæfir það vel þeim þunga sem víðast býr undir frásögninni. Greinilegt er að Tryggvi vandar mjög stíl sinn og mál- far og er ekki einn þeirra höfunda sem jafnan velja það orðatiltæki sem fyrst leitar í pennann. A stöku stað hefur 214
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.