Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Síða 110

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Síða 110
Umsagnir um bækur FÉLAGI JESÚS Einn titillinn í bókaflóðinu fyrir síð- ustu jól var „Félagi Jesús'',1 og er það sá titillinn, sem einna oftast hefur birst i fjölmiðlum og tíðast hljómað í eyr- um í umræðum manna á milli. Þó er þetta ekki mikil bók, hvorki að vallar- sýn né innihaldi. Hún er aðeins 78 blaðsíður að lengd, að vísu í stærra lagi að flatarmáli, en með bústnari spássíum en í meðallagi, og letur er stórt og þægi- legt svo fyrir börn sem gamalmenni. Þessi litla bók er skáldsaga byggð á viðburðum, sem frá er skýrt í helgirit- um þess trúarflokks, sem kennir sig við uppreisnarforingjann, sem er aðalper- sóna þessarar skáldsögu. Hann hét Jesús, en hlaut síðar viðurnefnið Kristur, þeg- ar byltingaflokkur hans hafði vent kvæði sínu í kross og gerst trúflokkur. Þá var honum gefið nafn draumaprinsins, sem þjóð hans hafði alið sér við brjóst öld- um saman sem frelsishetju sína. Höfundur nefndrar skáldsögu er að skrifa fyrir unga kynslóð, jafnvel innan táningaaldurs. Frásagnir eru stuttar og skýrt afmarkaðar, en söguþráður heil- legur. Frásagnarmáti er látlaus. I fáum dráttum er gefin skýr mynd af um- hverfi og persónum, en einkum þó aðal- 1 Sven Wernström: Félagi Jesús. Þórar- inn Eldjárn þýddi. Útgefandi Mál og menning. Reykjavík 1978. persónunni, félaga Jesú. Meginþema verksins er kúgun gyðingaþjóðarinnar undir yfirráðum rómverja og barátta alþýðunnar gegn þeirri kúgun og inn- lendu yfirstéttinni, sem eðli sínu sam- kvæmt var öðrum þræði handbendi er- lenda kúgunarvaldsins. I fyrsta þætti er stefnunni þegar beint í markið. Sviðið er örsnauða sveitaþorpið Nasaret, og á sviðinu er hópur ungra sveina að leik sínum. Brennandi mál líðandi stundar ltggur sveinunum uppistöðu leiksins í hendur. Þeir leika upphlaupsflokka og rómverja, sem berjast um yfirráðin yfir landinu, sem drottinn Jahve hafði í ár- daga gefið útvalinni þjóð sinni. Inn í þann leik kemur trésmiðurinn félagi Jesús á Ieið til síns heima að loknu starfi dagsins. „Hann var þrekinn og sterklegur maður með úfið hár og hrokkið skegg.'' Hann tekur að sér að vera rómverji, og þótt hann geti hlaðið þeim hverjum að öðrum, þar til yfir lýkur, þá leyfir hann þeim að sigra, svo að spádómar megi uppfyllast og draum- ar rætast. Þegar Jakob bróðir hans kemur heim um kvöldið, taka þeir bræður tal sam- an. Jakob hafði átt viðræður við unga menn, sem báru saman ráð sín um það, hvernig binda mætti endi á niðurlæg- ingarástand það, er ríkti með þjóðinni. Þeir sáu og skildu, að fyrsta skrefið til þeirra leiða voru sterk samtök hraustra manna, sem öfluðu sér trausts hins þjáða 236
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.