Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 5

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 5
Adrepur Það var enganveginn erindið. A hinn bóginn varð klausan til þess að ég fór að skoða betur þessa skála- ræðu sem MK flutti í Michiganháskóla þegar hann tók þar við heiðurs- doktorsnafnbót sem vonandi er bara varða á leið hans til Nóbelsverðlauna. Sá lestur rótaði upp í huga mér efni í stutta rabbgrein. Til þess bera menn nöfn að hinir kannist við þá hvenær sem nafnið ber á góma. Mílan Kúndera hringdi þannig bjöllu í hausnum á mér svo ég fór í gamla bókakassa, rótaði í þeim alveg þangaðtil ég fann kenslubók: „Uméní romanu" heitir sú bók, „Skáldsögufræði“ eftir Mílan Kúndera. Var lesin, ef ég man rétt, við Listaakademíuna í Prag veturinn 1962. Þá voru erfiðir tímar einsog jafnan. Samt voru menn ekki neitt að örvænta um framtíð skáldsögunnar í aust- anverðri Evrópu þá dagana. Eg slæ upp í bók Mílans og vel mér kafla neðst á síðu til vinstri (þetta er gamall samkvæmisleikur). Þar segir þá einmitt af því hvernig borgaraleg ódaungun hefur sogið lífið úr skáldsögunni vestantjalds (ekkert jók mönnum þá meiri bjartsýni austur þar en vitneskjan um alsherjarhnignun vestursins; en bjartsýni var og er skylda þarumslóðir engu síðuren hérlendis). Þessi dauði skáldsögunnar í löndum kapítalismans á sér þó takmörk að dómi MK, þar týrir nokkuð skært (að hans dómi) á „sósíalísku raunsæinu í skáldsögum Aragons þarsem áleitin marxísk lífsýn hefur náð háum listrænum þroska“. Blaðsíðunni lýkur Kúndera síðan með því að hylla Sjólokov og það skátafélag altsaman sem hann nefnir sovésku nútímaskáldsöguna. Hún er afsprengi hinna miklu höfunda rússneskrar klassíkur. Með ærinni framför þó (bjartsýnismaðurinn setur altaf jafnaðar- merki á milli framvindu og framfara). Þessum mikla arfi hefur semsé verið „lyft til æðra veldis þeirrar listar sem hirðir um vandamál framsækins húmanisma“. En framsækinn húmanismi er vitaskuld sá húmanismi sem berst gegn heimsvaldastefnu auðjöfranna sérstaklega. Hugtak beint uppúr frystikistu Lenínismans. Þannig var útsýnið frá Prag árið 1961, en þá kom „Skáldsögufræði“ út og þótti mjög líberal bók. Tuttugu og þrem árum síðar horfir MK á þetta sama skátafélag úr ræðu- púltinu í Michiganháskóla og þá blasir nú heldurbetur við honum ósóminn. Þessir strákar eru semsé orðnir morðingjar skáldsögunnar. „Hálf öld er nú liðin síðan skáldsagan lauk göngu sinni í Rússlandi" segir hann við háskóla- krakkana í Bandaríkjunum. Og vel má það líka rétt vera. Réttur MK til að skipta um skoðun eftir því hvaðan hann er að horfa á veröldina er vitaskuld dýrmætur. Og landið fær annan svip þegar fjöll eru 123
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.