Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 25
I leit að nútíðinni — í uppgjöri við fortíðina hennar er lífinu í smáþorpinu oft haldið fram á kostnað borgarlífsins í Þórshöfn og stórborgarlífsins sem unglingar kynnast þegar þeir fara til náms í Kaupmannahöfn. Stundum er myndin einfölduð um of og allt séð í svörtu og hvítu en henni tekst líka að lýsa börnum og vandamálum þeirra á raun- sæjan hátt. Eftir Maud Heinesen kom 1974 út bókin Marjun og tey sem segir frá tíu ára stelpu í Þórshöfn. Málfarið á bókinni er létt og samræður sérstaklega lipurlega gerðar, auk þess er lýsingin á stelpunni mjög fjölbreytileg — hún getur verið bæði þæg og óþæg, örlát og eigingjörn. Marjun og tey er stelpu- bók sem skarar fram úr færeyskum barnabókmenntum, fjörug og skemmti- leg. Hún kom út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarman árið 1978. Ebba Hentze starfaði um langan aldur við þýðingar í Danmörku. Hún kom fram sem barnabókahöfundur fyrir tveim árum, semur á dönsku en bækurnar eru jafnóðum þýddar á færeysku. Fyrstu tvær bækur hennar eru nútímasögur og fjalla um stelpuna Antoniu sem er tíu ára. í nýjustu bók sinni Mamman eigur meg (1983, Mamma á mig) sækir Ebba efni í þjóðsög- una um vinnumanninn Snæbjorn sem var dæmdur á Brímarhólma en flúði og varð útilegumaður. Aðalpersóna bókarinnar er strákurinn sem Snæbjorn eignaðist með fjósakonu og í sögunni er stráknum sagt frá örlögum föður síns og því ranglæti sem yfirvöld beittu hann. En jafnframt tekur bókin til meðferðar kjör lausaleiksbarnsins í þjóðfélagi þar sem svo mikið veltur á hvernig barn getur svarað hinni eilífu spurningu: Hver á þig? Auk þess er sýnt fram á kröfu og þörf barnsins fyrir að þekkja uppruna sinn. Með alda- gamalt söguefni sitt felur bókin í sér skírskotanir til nútímans. Hlutur kvenna í færeyskum barnabókmenntum er óneitanlega mjög álit- legur. En einnig skal hér nefndur mikilvirkasti barnabókahöfundurinn meðal karla, Steinbjorn B. Jacobsen, sem er einnig ljóðskáld. Hann hefur samið fjölda skemmtilegra smábarnabóka og auk þess sögur handa stærri börnum. Meðal þeirra síðari eru Hin reyða ryssan (1979) og Maria og rossið (1980) sem eru nútímasögur og gerast í Þórshöfn. Þær segja báðar frá stelp- unni Mariu sem býr með móður sinni einni. Lýst er daglegu lífi stelpunnar og fléttast þar inn í vandamálið að eiga ekki föður. Vandinn er bæði tilfinningalegur og félagslegur sem og fjárhagslegur: með móðurina sem einu fyrirvinnu heimilisins býr Maria við þrengri fjárhag en flestir félagar hennar. En Maria er atkvæðamikil og tekst á við vandamálin á sinn eigin hátt. Heitasta ósk hennar er að eignast hest og óskin verður að veruleika þegar hún fær því áorkað að skólabekkurinn hennar kaupir hestinn í sam- einingu! Mikill hörgull er ennþá á færeyskum barna- og unglingabókum, ekki síst bókum sem fást við nútímann, líf og vandamál barna og unglinga á okkar 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.