Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 28
Tímarit Máls og menningar hinum fjölbreytta skáldskap hans eru sterkar tilfinningar en honum er einnig tamt að beita fyrir sig írónískum tón. Með endurlífgun hálfgleymdra orða og lipurri gerð nýyrða hefur hann verið áhrifamikill endurnýjandi færeysks ljóðmáls. — Það mætti telja upp fleiri skáld sem hafa haft mikil áhrif fram á okkar daga en þessi þrjú ofangreindu verða látin nægja til að gefa nokkra hugmynd um þá hefð sem færeysk ljóðskáld á síðasta áratug og hálfum betur hafa stuðst við. Sú pólitíska vitundarvakning og vaxandi alþjóðahyggja sem áttu sér stað víða um heim á 7. áratugnum, ásamt samstöðunni með frelsisbaráttu undir- okaðra, settu sín spor í skáldskap þessa tímabils. A færeysku urðu til ljóð um félagslegan veruleika líðandi stundar, heima fyrir og á alþjóðavettvangi. I forminu er einnig gengið lengra en áður við að brjóta höft ríms og reglulegrar hrynjandi. Við hliðina á þessum pólitísku ljóðum spratt upp ný ljóðræn náttúrutúlk- un þar sem einstaklingurinn kemur fram með skynjanir sínar og tilfinning- ar. Hér reið á vaðið Guðrið Helmsdal Nielsen (f. 1941) sem er eina konan er gefið hefur út ljóðabók á færeysku. Ljóðabók hennar Lýtt lot (Blíður blær, 1963) var nýjung og hinn persónulegi tónn féll vel að frjálsu forminu. I annarri ljóðabók Guðriðar, Morgun í mars (1971), er hluti af ljóðunum á dönsku en Guðrið fluttist unglingur til Danmerkur og bjó þar um árabil áður en hún sneri aftur til Færeyja. I seinni bókinni gerir hún tilraunir með japanska ljóðaformið haiku og dregur upp snilldarlegar stemningsmyndir í örstuttu máli. Steinbjorn B. Jacobsen (f. 1937), sem áður er nefndur í sambandi við barnabækur, kom einnig fram sem ljóðskáld á sjöunda áratugnum en hann birti fyrstu ljóðabók sína, Heimkoma, 1966. Síðan hafa komið út eftir hann fleiri ljóðabækur, sú síðasta, Tægr (Taug) 1980, auk þess sem hann hefur samið leikrit (þar á meðal Skipið sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík 1975). Steinbjorn hefur ort mikið af ádeiluljóðum þar sem hann beinir skeytum sínum að neysluhyggju þjóðfélagsins og hinni hamslausu tækni- væðingu. Hann orti gegn inngöngu Færeyja í Efnahagsbandalag Evrópu þegar hún stóð til á sínum tíma. Hann rekur óþolinmóður á eftir okkur samtímamönnum sínum með kröfu sinni um að við byggjum upp betra þjóðfélag og hafnar því að smæð þjóðarinnar sé nokkur afsökun fyrir að- gerðaleysi. Uthverfa hliðin á skáldskap Steinbjarnar kemur fallega fram í ljóðinu „Vit bæði“: Inni í mær kann tú ikki búgva eg eri eingi hús um enn tú kann liggja í mínum favni 146
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.