Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 50
Tímarit Máls og menningar hendur kvalara sinna, hann sá aldrei son sinn, og orti til hans fagurt ljóð. Aleixandre er sprottinn eins og fleiri hin fremstu skáld Spánar upp úr dansglöðum ávaxtalundum Andalúsíu, þar sem lófaklöppurnar ríkja, kasta- nettan; og gítarinn syngur beint út úr hjarta fólksins og sál. Hann ólst upp í Malaga eins og Alberti; Malaga de las flores. Fæddist reyndar í Sevilla. Fluttist ungur til Madrid, þar stundaði hann svo laganám; en ljóðlistin togaði hann til sín. Síðan fékk hann svæsna berkla sem hlupu í nýrun. Ljóðlistin bjargaði honum. Fyrst bar mest á áhrifum hins mikla Suðurameríkuskálds Rubén Darío, sem sótti sér innblástur til Parísar, til hinna miklu frönsku skálda eins og Rimbaud, Verlaine og Baudelaire og ekki sízt til Mallarmé og symbólista, og olli byltingu í spönskum skáldskap á þessari öld. Hann orti til að mynda fyrstur spönskumælandi skálda prósaljóð að hætti Baudelaire, og Neruda lýsir í minningum sínum forkostulegri hyllingu í samspili hans og García Lorca í Buenos Aires, þar sem þeir sneru af fjöri og andagift á gaura aftur- halds. Rubén Darío opnaði Aleixandre ný svið í ljóðlistinni, og svo urðu drjúg honum áhrif af skáldskap Rimbaud. Framan af bar mjög í ljóðum Aleixandre á súrrealískum áhrifum, mynd- ríki og mælsku, sem raunar lá í tíðinni. Draumar, og geystar tilfinningar; músík í forminu var oft vísvitandi rofin af stílbrjótum og mishljómum til áherzlu. Andstæður voru ríkulegar og mikillar fjölbreytni gætti. Fyrst var ljóðabókin Pasion de la tierra, Þjáning jarðarinnar sem spratt af miklum umbrotum á tímabili í lífi skáldsins; þar eru prósaljóð þar sem skáldið lýsir öngþveiti sem leit hans að lífsgildi leiddi hann út í; viðleitni til að finna sér traustan grunn að reisa á, og jörð til að ganga á; og hann heldur áfram þeirri leit í næstu ljóðabókum sínum: Espadas como labios, Sverð sem varir, og La destruction o el amor, Eyðingin eða ástin. I þessum bókum metur skáldið líf sitt frá rótum, kannar stöðu sína í tilverunni, berst vægðarlaust og teprulaust og óbanginn við hafsjó efasemda sem hrynja yfir hann, endurmetur allt. Hvar stend ég? Hann hafði komizt í kast við Freud sem var ásamt Marx einn helzti áhrifavaldur í bókmenntum tímans, á þessu skeiði, — á þriðja áratugnum. Freud hafði sterk og gagntæk áhrif á Aleix- andre. Hann átti við mikil persónuleg vandamál að glíma og sætti mót- streymi og armæðu, bæði vegna sjúkdómsbölsins, og átaka innra og ytra, við umhverfi sitt. Astin. Hún verður skáldinu drjúgt yrkisefni. En oft skyggir dauðinn á: Hvers vegna kyssa varir þínar þegar maður veit að dauðinn bíður / ef maður veit að það að elska er bara að gleyma lífinu / að loka augunum fyrir nær- 168
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.