Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 89

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 89
Konan, draumurinn og dátinn skýringarinnar sé að leita í lítilli meðvitund þeirra. Framtíð þjóðarinnar er í hættu, það sem „gín við þessari þjóð“ er „hyldýpisfen ómenningar og siðleysis". Hinir erlendu setuliðsmenn fá rangar hugmyndir um menningu þjóðarinnar enda „af ýmsu ljóst, að virðing þeirra fyrir henni muni af skornum skammti“ (632). Nú erum við kannski komin að meginþætti umræðunnar á stríðsárunum. Framtíðarsýn nefndarinnar er sú sama og hjá Vilmundi: . . . aðalhættan er . . . fólgin í því, að hér myndist stór vændiskvennastétt, sem segir sig úr lögum við siðað þjóðfélag. I fyrsta lagi myndi fjöldi stúlkna, ef ekkert er aðhafst, smám saman fara að dæmi slíkra kvenna, jafnvel þótt í þeim væri sæmilegur efniviður, ef vel væri á haldið, því að slíkt lausungarlíf hefur á sér nokkurn ævintýraljóma, sem margir eiga örðugt með að standast jafnt fyrir það, þótt eymd og umkomuleysi þeirra, sem þátt taka í ævintýrunum, séu sæmilega vitibornu fólki ljós. En auk þess er það staðreynd, að hinir bezt gerðu eiga að tiltölu miklu færri afkvæmi, og um uppeldi þeirra barna, sem eiga vændiskonu að móður, þarf engum getum að leiða. (632) Málið er sett upp eins og um sýki sé að ræða. Hún hefur stungið sér niður, konur eru einstaklega veikar fyrir henni og munu sýkjast, og þeim fækkar sem hafa mótstöðuaflið og þekkja aðferðirnar til að vinna á henni. Nefndin endar skýrslu sína á herhvöt til bjargar framtíð íslensku þjóðar- innar: Það, sem mestu máli skiptir, í þessu sem öðru, er að hver einstaklingur geri skyldu sína, að hér skapist sterkt almenningsálit, sem krefst þess að íslenzkt þjóðerni, íslenzk menning og íslenzk tunga verði vernduð, að Islendingar verði framvegis sjálfstæð menningarþjóð. Framtíð íslenzku þjóðarinnar er fólgin í því einu, að æska landsins gleymi ekki þegnlegri skyldu við blóð sitt og móðurmold. (634) Þegar umræðan birtist líkt og hún gerir hér er spurning hvort hún tengist ekki hræðslu um pólitíska framtíð Islands vegna hernámsins og nýrrar stöðu mála. Stafar þessi mikli áhugi á konum á stríðsárunum ekki af því að verið er að finna blóraböggul? Það gæti skýrt furðulega röksemdafærsluna, öllum ráðum er beitt til að komast að fyrirfram ákveðinni, réttri niðurstöðu. Það er eftirtektarvert hvernig karlar halda sér utan við og hvernig þeir skilgreina sig sem eftirlitsmenn. En þó er kannski eftirtektarverðara hvernig breski herinn er firrtur allri ábyrgð. Hermann Jónasson forsætisráðherra fann sig knúinn til að 207
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.