Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 93
Konan, draumurinn og dátinn Lokaorð Hernámsárunum 1940—45 hefur oft verið lýst sem einu afdrifaríkasta tímabilinu í sögu tuttugustu aldar á Islandi. Samskipti íslenskra kvenna og erlendra hermanna ber oft á góma þegar fjallað er um þessi ár og stundum verða þau aðalatriðið. Eins og ég hef nú sýnt fram á hefur umræðan um þessi samskipti verið reist á mjög einfaldri og fordómafullri hugmynd: Konur hafa ákveðið eðli sem lýsir sér í eftirgjöf, lítilli meðvitund og þrá eftir því að vera gefin undir aðra. Þetta eðli birtist sterkast þegar hermenn, fulltrúar valds og ofbeldis, eru annars vegar, þá rætist æðsti draumur kvenna. Hernaðarlegt ofbeldi (hernám) er beinlínis tengt við kynferðislegt ofbeldi (nauðgun), konur njóta hernámsins því þær vilja láta hermenn kúga sig- Umfjöllunin um hernámsárin hefur því einkennst af mjög ákveðnum for- dómum um konur og hlýtur það að vekja ýmsar spurningar um hvernig slíkt getur átt sér stað. Ég kom með eina skýringartilraun og benti á að með því að leggja ofuráherslu á konur og kenna þeim um allt sem miður fór, væri fundinn blóraböggull sem hægt væri að varpa allri sök á. En ekki er aðalatriðið að reyna að svara því hvers vegna þetta gerðist, það skýrir heldur ekki hvers vegna þessi umræða hefur reynst jafn almenn og langlíf og hún hefur verið. Það hlýtur að vera mikilvægara að viðurkenna að hún er afturhaldssöm og því full þörf á að endurskoða hana frá grunni. Tilvitnanir 1) Vésteinn Olason: „Frá uppreisn til afturhalds — Breytingar á heimsmynd í skáldsögum Indriða G. Þorsteinssonar", Skírnir 1981, bls. 133. 2) Helga Kress: „Kvinne og samfunn i noen av dagens islandske prosaverker", Ideas and Ideologies in Scandinavian Literature since the First World War, Reykjavík 1975, bls. 220. 3) Op. cit., bls. 239. 4) Indriði G. Þorsteinsson: „Kona skósmiðsins", Sœluvika, Reykjavík 1951, bls. 132-140. 5) Það er fróðlegt að skoða þessa senu með hliðsjón af þeim dæmum sem Kate Millet kemur með í fyrsta hluta bókar sinnar, Sexual Politics (1970), einkum fyrsta dæminu. Kona skósmiðsins heldur sýningu á sjálfri sér, hermennirnir horfa á hana en hún skiptir þá engu máli, uns einn þeirra gengur að henni sem gefnum hlut og ríður henni án nokkurs formála. Kona skósmiðsins mótmælir fyrir siðasakir en nýtur þess í rauninni að vera beitt kynferðislegu ofbeldi. Sjá einnig: Helga Kress: op. cit., bls. 221. 211
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.