Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 98

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Side 98
Tímarit Máls og menningar beri engan skaða af slíku hliðarspori." (207). Og hann hegðar sér í samræmi við það. Ingunn stóð honum manna næst, hann gat við henni barn, en mikilvægara varð að „standa vörð um reikula sjálfs- ímynd mína“ gegn foreldrum hennar (112). Hjördísi, sem hann tók í stað Ingunnar og hefur búið með í storma- sömu sambandi, kúgar hann af enn meiri þrótti og nautn en Halldór sínar konur. Ofbeldisatriðin, er Pétur lúskrar á Hjör- dísi, eru firna vel gerð; hvernig tvinnað er saman kvalalosta, kynæsingu, sjálfs- fyrirlitningu og sjálfsvorkunn, en þrátt fyrir það laumað að þeirri skoðun að það sé konan sem beri ábyrgðina á bar- smíðunum, hún leggi fram forskriftina. „Jæja, þú hafðir það af, segir hún nánast sigri hrósandi og hefur á loft blæðandi tromp sitt.“ (67, ennfr. 66, 199). Pétur fór til Kaupmannahafnar án þess að láta Hjördísi vita, átti þar ástarævintýri, kom heim og lét verða sitt fyrsta verk að reyna að komast í ból Aðalbjargar, en hann ætlar sér alls ekki að sleppa því sem hann hefur. „Þú sleppur aldrei frá mér Hjördís," segir hann með tárin veltandi niður kinnarnar eins og steinhnull- unga og kýlir hana í miðstöðvarofn- inn (199). En þó Hjördís telji sig vera búna að fá nóg og hafi sótt um skilnað ver hún samt Pétur enn (165). Og hún leyfir Páli sál- fræðingi að halda sama striki. Frásögnin af auðmýkingu Hjördísar er Páll neyðir hana til samræðis við sig (167) gæti þó fullt eins verið óskhyggja Péturs, því hann er haldinn sjúklegri afbrýðisemi gagnvart Páli. Að minnsta kosti svipar orðum þeirra oft saman undir líkum kringumstæðum: „Ef fólk er ekki sjálft fært um að taka ákvarðanir verður ein- hver að gera það fyrir það,“ (65) segir Pétur Hjördísi; „ . . . stundum vita aðrir betur en maður sjálfur hvað maður segir og hugsar,“ (165) segir Páll þegar Hjör- dís tekur leiðbeiningum hans ekki nógu vel. — Skiptir kannski litlu hvert nafnið er, Pétur eða Páll — Halldór — Guðni eða Robbi, rustalegt oflæti og kvenfyrir- litning flestra karlmanna bókarinnar, sem lesandi sér síðan færast yfir á Har- ald, son Ingunnar og Péturs, er hið sama, rótgróið gegnum aldirnar, og ekk- ert virðist geta breytt því. — Má í því sambandi benda á það kátlega fyrirbæri sem margir karlhöfundar iðka af mikilli list, en það eru olnbogaskotin í kvenhöf- unda, og er Pétur þar engin undantekn- ing. Að vísu þóttu mér skotin í gegnum Guðna, bókaútgefandann, sem verður sama karlmyndin og hinar fyrri þó í sterkari litum sé, bæði óþörf og trufl- andi við lesturinn (145, 151); mun skemmtilegra var það sem Pétur læðir sjálfur að síðar:...listamennirnir . . . hvað eru þeir annað en tippi sem skreppa saman í kuldagjóstri?" (173). En það er í Ingunni sem mótvægi kemur fram við hinar hefðbundnu kven- legu ímyndir sem Guðrún, Aðalbjörg og Hjördís eru. Og er það ef til vill fyrst og fremst í frásögnum Péturs af henni — og Hjördísi eins og áður var nefnt — sem tortryggni mín vaknar. Ingunn giftist Marteini, er Pétur hafði látið hana lönd og leið. „Ingunn búin að gánga af Mar- teini dauðum?“ (18), á þessari spurningu Péturs er hamrað með ýmsum tilbrigð- um út alla bókina. Mikil áhersla er einn- ig lögð á að sýna að Marteinn sé Ingunni ekki samboðinn. „Eiginkonan, segja samkennararnir . . . ótrúlegt að hann skuli hafa náð í þessa konu.“ (36). „Hann er heimskur!“ segir Haraldur sem líkist föður sínum meir og meir (52). Það var heimskulegt, segir Pétur við Ingunni að „þú skyldir ætla að ná 216
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.