Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 102
Tímarit Máls og menningar móti þeim standa kvenmyndirnar með Ingunni í fararbroddi, það eru þær sem vísa veginn. „Og hvað um ástina?“ spyr Guðrún (33), „Ég vil ekki lifa lengur eins og skuggi . . . ég vil hafa góða sam- visku af því að lifa þessu lífi,“ segir Hjördís (62), „Maður verður að trúa á eitthvað," segir Aðalbjörg. (74). En það er Ingunn sem skynjar best veruleika þeirra allra, hún stendur mitt á milli ýktra karl- og kvenmynda sögunnar, með eiginleika beggja sem hugsanlega geta þroskast, og það er hún sem heldur fast við hugsjón sína, hugmynd um manninn gegn hugsjón villimennskunn- ar (206). A sinn hátt gerir Marteinn það líka, en trú hans var bundin klíkunni, hugsjón hennar og draumi. Þess vegna hljómar verknaður hans hærra en allur orðaflaumurinn, gálgahúmorinn hverfist í andstæðu sína, jarðsambandið er rofið. Ekkert er eftir nema hugsjón Ingunnar. Á henni hvílir framtíðin. Það er sagt að góðar bækur þekkist á því að þær megi lesa aftur og aftur og alltaf finnist eitthvað nýtt. Sé það rétt þá er þessi bók Ólafs Hauks Símonarsonar um rithöfundinn Pétur og vini hans góð bók. Við getum kallað Pétur og félaga hvað sem við viljum, hvítvínssvelgi, menningarvita, fúavarnarlið, hugsjóna- legt flóttafólk eða einfaldlega leiðinda- pakk, en það breytir ekki þeirri stað- reynd að þau eru tákn ákveðins fyrir- bæris sem ekki er auðveldlega hægt að ganga fram hjá, þeirrar hugmyndalegu kreppu sem reið yfir ungt fólk á vinstri væng á síðari hluta 8. áratugarins og ekki er enn séð fyrir endann á. Þeirrar stöðnunar sem fylgdi í kjölfar hinna sterku lífshræringa sem kenndar hafa verið við fólkið sem stundum er nefnt ’68 kynslóðin. I Vík milli vina virðist mér höfundur telja veikleika þeirra hræringa hafa legið í því hvað hugsjón- irnar og draumarnir voru óljósir, og ómarkvissir og illa tengdir sögu og veru- leika. Að minnsta kosti hér á norður- slóðum. En vel að merkja: það er karl- mannaheimur sem birtist í þessari bók, heimur Péturs, og hann leiðir auðvitað hjá sér kvenna- og friðarhreyfingar, hef- ur trúlega skömm á þeim, ef hann hefur þá veitt þeim athygli. Skelfing er það annars dapurlegt hvað lítið er orðið um sjarmerandi karlmenn — í bókum á ég við. Karlaheimurinn sem þar birtist er grár, kaldur og harður. Upp í hugann koma bækur eins og Ung- lingsvetur eftir Indriða G. Þorsteinsson, Hjartað býr enn í helli sínum eftir Guð- berg Bergsson og nú þessi, allt góðar bækur, en lýsa í kjarna sínum hráköld- um karlaheimi, þar sem ofbeldi og von- leysi eru ríkjandi. — Engu að síður er Vík milli vina að mörgu leyti skemmti- leg aflestrar, í henni eru drepfyndnir kaflar inn á milli eins og til dæmis fyrstu skipti Halldórs, Péturs og Aðalbjargar (89—90), Þjóðleikhúsþátturinn með Guðmund í aðalhlutverki (169—172), að ekki sé nú minnst á þátt Hafliða hús- byggjanda (172—175 og 189 — 191) o. fl. Málfar bókarinnar er eins og vænta mátti lifandi og þróttmikið, samtölin alltaf góð og stundum leiftrandi, og hæfni höfundar til að leika með frasa og klisjur aðdáunarvert. Þetta er ákaflega vel unnin og heiðarleg bók að mínum dómi. Þessi bók fékk heldur óblíða umfjöll- un gagnrýnenda er hún kom út og í sjálfu sér kom það ekki á óvart, því bókin fjallar um viðkvæm mál og hefur að engu þær kröfur sem hljómað hafa undanfarin ár, og hver bergmálar eftir öðrum, um eitthvað nýtt og skemmti- legt, og því síður gefur hún þau skýru 220
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.