Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Síða 107

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Síða 107
Lási og Heiða sitja uppi með krakka sem þau þurfa stöðugt að biðja einhvern um að passa. Móður Heiðu finnst að þeim Lása hefði ekki legið á að hella sér í barneignir svona fljótt. Námið í tísku- skólanum nýtist Heiðu ekki því hún kemst ekki í fegurðarsamkeppnina. Það kemur fram að Lási hefur alltaf verið á móti kroppasýningum en lesandinn fær ekkert að vita hvernig Heiðu verður við þegar hún kemst að því að hún á von á barni. Hún er sannfærð um að Lási hefði getað orðið vélaverkfræðingur, en hann er „bara“ í bifvélavirkjun og þar með ekki eins efnileg fyrirvinna. Heiða fær ekki mikið rými í sögunni, þó gerir hún sér hugmyndir um hvað Lási hefði getað orðið en virðist viljalaus um sína eigin framtíð. Hvernig er með Evu, stelpuna sem Elías bindur vonir við, eða aðrar vinkonur Elíasar. Eru þær áhugalausar um eigin framtíð eins og Heiða eða sjálf- stæðar stelpur? Nœsta bók Svör við þeim spurningum sem vakna um Elías og vinkonur hans fær lesand- inn vonandi fljótlega í nýrri bók um Elías. Einnig er spennandi að vita hvernig hjónaband Lása og Heiðu gengur því Lási er vel sköpuð persóna af höfund- arins hálfu og nauðsynlegt að fá að sjá hvernig hann þróast. Elías áttar sig á því að hjá Lása hefur kærasta breyst í konu og kvartmílubíll í krakka og öfundar- tónninn í garð hans hverfur. En hefur Elías áttað sig á eigingirni Lása og lífsaf- stöðu hans yfirleitt eða fer Elías sömu leið og hann? Segja má að sú mynd sem lesandi fær af Elíasi sé nokkuð einhliða þar sem áhugi hans og tilvera miðast nær ein- göngu við tengsl hans við hitt kynið. Umsagnir um btekur Lesandinn er ekki mikið með Elíasi í skólanum, við störf eða meðal kunn- ingja. En grunur minn er sá að ungir menn séu talsvert uppteknir af ungum konum og þannig verður það vonandi enn um sinn. Hann virðist hafa góðan tíma til að Iáta sig dreyma dagdrauma um elskuna sína. Hann þarf ekki að þvo upp eða sinna öðrum skyldum á heimil- inu. Höfundi fyrirgefst þetta þar sem Elías er iðinn við að gæta litla frænda síns en stelpur hafa fram til þessa fengið að leika það hlutverk í barna og ung- lingabókum. Saga Elíasar er skemmtileg saga. Höf- undi lætur létt að fá lesendur til að brosa, en hann má gjarnan vera óragari við tárin. Guðbjörg Þórisdóttir ATHUGASEMDIR VIÐ RITDÓM Inngangur Það þykir ekki góður siður höfunda að svara gagnrýni á verk sín. Þó get ég ekki látið hjá líða að gera athugasemdir við umfjöllun Auðar Styrkársdóttur í Tíma- riti Máls og menningar nr. 4, 1983, um skýrslu mína sem fjallar um niðurstöður félagsfræðilegrar spurningakönnunar og var unnin á vegum Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar. I grein Auðar kem- ur fram fjöldi rangfærslna, og umfjöllun hennar er ákaflega illa undirbyggð, fljót- færnisleg og gagnrýnt meira af vilja en mætti. Virðist sem Auður hafi einsett sér að skrifa mjög „harða“ gagnrýni, burt- séð frá því hvort hún ætti rétt á sér eða ekki. Verður þó ekki frekar fullyrt hér um þær hvatir sem að baki þessum skrif- um liggja, en þess í stað verður í 7 liðum farið í gegnum hina löngu grein Auðar og leitast við að andmæla rangfærslum hennar. 225
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.