Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 81
Draumar í íslendingasögum
farvegi sínum. Þú veður yfir það á kunnu vaði, en stígur aldrei tvö skref í
sama vatninu.
Þessi ferlarás spannar almennt og greinilegast yfir einstaklingsævina, en
teygir sig einnig í óákveðinn fjarska bæði til fortíðar og framtíðar. Yfir þá
reginleið hefir vitundin í hverju nútíðarbili meðvitaða eða dulvitaða yfirsýn.
Engin nauðsyn knýr því til að leita út fyrir það svið, sem vitundarreynsla
mannsins spannar, til að skýra fyrirbæri draumsins. Fjölbreytni draumanna
rúmast öll innan vitsmunalífsins og úr þeim jarðvegi eru þeir sprottnir.
Vissulega felst spá í mörgum draumi, en hún er sama eðlis og væntingar og
áform, sem við höfum um framtíð okkar. Líku máli gegnir um myndir og
atburði í draumi, sem virðast í fyrstu framandi og torkennileg; oftast er
unnt að rekja þau með nákvæmri könnun til hálfskynjaðra hrifa, brota-
kenndra minninga og geðrænna hræringa, sem geymast í dulvitund dreym-
andans, síbúnar að vakna til meðvitundar, ýmist í draumi eða vöku.
Eflaust má finna einstaka drauma, sem örðugt reynist að rekja til greinan-
legs vitundarinntaks. Það veikir framangreind rök þó á engan hátt. Einnig
um eðli og starfshátt vökuvitundar eru ráðgátur, sem torvelt reynist að
leysa. En það er grundvallariögmál vísindalegrar hugsunar að grannskoða
rök hins ræða sviðs áður en leitað er til hins óræða.
Þó að skáld segi drauminn fara með önd dreymandans í gandreið „út um
alla geima“, þá er draumheimur þröngur og fábrotinn hjá víddum og
fjölbreytni í starfi vökuvitundar. Um lífeðlislegar orsakir þessa munar skal
ekki rætt hér. Hann er auðsær. Hinar miklu vísinda- og tækniuppgötvanir
ásamt sköpun sístæðra verka á öllum sviðum lista eru afrek vökuvitundar.
Vökul greinir vitundin efnið niður í smæstu ódeili, reiknar brautir hnatta og
sólkerfa, þeytir tækjum út fyrir segulsvið jarðar og gerir mönnum fært að
lifa þar og starfa. Skapandi hugarflug af þessu tagi er draumvitund ekki léð.
HeimilcLir
Islendingabók. Landnámabók. Islenzk fornrit I 1—2. Jakob Benediktsson gaf út. Reykjavík
1968.
Sturlunga saga I—II. Jón Jóhannesson, Magnús Finnbogason og Kristján Eldjárn sáu um
útgáfuna. Reykjavík 1946.
Snorri Sturluson: Heimskringla, udg. af Finnur Jónsson, Kabenhavn 1911.
Islendinga sögur, 1.—12. bindi. Guðni Jónsson bjó til prentunar. Reykjavík 1946—47.
Byskupa sögur, 1,—3. bindi, Guðni Jónsson bjó til prentunar. Reykjavík 1948.
Sturlunga saga, 1.—3. bindi, Guðni Jónsson bjó til prentunar. Reykjavík 1948.
Ares Islánderbuch, herausgegeben von Wolfgang Golther, Halle 1973.
Kristnisaga. Þáttr Þorvalds ens víðförla. Þáttr Isleifs biskups Gizurarsonar. Hungurvaka,
herausgegeben von B. Kahle, Halle 1905.
Matthías Jónasson: Eðli drauma, einkum 9. og 19. kafli. Reykjavík 1983.
479