Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 102
Tímarit Máls og menningar við gluggann og við borðuðum ávexti og drukkum bændavín. Nú vorum við líka með blóðrauða melónu — þau hinum megin gátu séð það, og vissu líka að við höfðum fengið lystina við að horfa á þau. Þau brostu til okkar. Holduga stúlkan stóð í opnum glugganum á hæðinni fyrir ofan og renndi augunum í átt að breiðgötunni, þaðan sem hún bjóst við svarthærða, sólbrúna elskhuganum sínum. Hún var búin að standa lengi fyrir framan spegilinn að leggja á sér hárið og laga sig til og nú var hún orðin hálf óþolinmóð, því það var komið fram yfir tímann. A hverjum degi var komið dálítið fram yfir tímann. En loksins kom hann niður götuna — við gátum okkur þess til af tilburðum hennar, þó við gætum ekki séð hann, en hún hörfaði afturábak frá glugganum og gerði sér upp kæruleysi. Svo sem eins og þegar maður gengur um gólf og raular og lætur eins og sér standi á sama. Og lagfærir á sér hárið og lítur snöggt í spegilinn. Og sest með handavinnu og hefur setið þannig lengi og alls ekki búist við neinum. — Við sáum þau heilsast uppi í herberginu, sáum hvernig stúlkan lagði holdugan líkama sinn þétt upp að honum, eins og franskar stúlkur gera. Þannig að líkami hans snerti líkama hennar allsstaðar — nema bara andlitið, sem sveigist afturábak og brosir stríðnislega og hefur ekki gefist honum enn. En skömmu síðar hörfuðu þau lengra inn í skuggann og við gátum ekki séð af þeim annað en fingur hennar í þykku svörtu hnakkahári hans, ofan við sólbrúnan hálsinn. Svo kom hún allt í einu út að glugganum og dró rúllugardínuna niður og okkur sýndist hún brosa snöggt til okkar um leið og hún hvarf. Við drógum líka rúllugardínuna niður. Við fengum ekki mörg bréf og gleymdum fljótt því sem í þeim stóð. En svo rann upp sá dagur þegar stóð í einu bréfinu: „Hvenær er von á ykkur heim? Nú eruð þið líklega hætt við að fara upp í Pýreneafjöll?“ Við skildum þetta hálf illa, hversvegna ættum við að hafa hætt við það? Að vísu vorum við næstum hætt við ferðina, þorðum eiginlega ekki að minnast á fjöllin hvort við annað, því þau voru orðin dálítið brosleg. En hvernig gat bréfritarinn vitað það? Nokkrum dögum seinna fengum við annað bréf, sem var frá móður Winníar: „Þið verðið að drífa ykkur heim sem fyrst. Við erum ekki í rónni fyrr en við sjáum ykkur." Þá rann upp fyrir okkur að það hlaut að vera stjórnmálaástandið sem átt var við. Við fórum að hlæja af því þau voru svo langt í burtu og svo áhyggjufull en við 500
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.