Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Síða 6

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Síða 6
Tímarit Máls og menningar ráðist er gegn og kannski er að einhverju leyti hægt að útskýra það með smæð íslensks samfélags; hér þekkja allir alla og enginn þorir að nefna nöfn einstakra sökudólga. Mun einfaldara er að halda sig við dylgjustílinn; rífast og skammast út í „suma“ og „ýmsa“, eins og áður er sagt. Eða, það sem auðveldast er, að tala um stéttina sem einn mann. A meðan (and)gagnrýnin er á þeim nótunum verða gagnrýnendur sem heild að taka á sig skammirnar, og bregðast við ef þeir nenna. Einar Már reynir að verja skort sinn á röksemdum í lokaorðum ádrepu sinnar, með þeirri undarlegu fullyrðingu að „Það [sé] hins vegar eðli kenninga sem fram eru settar að gögn [séu] aldrei lögð á borðið fyrr en einhver rís upp og mótmælir þannig að mark sé á takandi . . (7). Þessi orð Einars Más má líka skilja sem ögrun eða ósk um andsvar. Ef við lítum aðeins á málflutning Einars Más, byrjar ádrepa hans sem bein- skeytt ádeila á menningarástandið á Islandi almennt, en færist síðan út í (miður beinskeytta) ádeilu á bókmenntagagnrýnendur sem stétt. Gagnrýni á gagnrýnendur er af hinu góða, eins og gagnrýni á listina. Eins og listamenn gera þá kröfu á hendur gagnrýnendum sínum að þeir vinni af heild- indum, „opni bækur með opnum huga“ og rökstyðji gagnrýni sína, hljóta gagnrýnendur að krefjast þess sama af listamönnunum, að þeir rökstyðji sinn málflutning, sína gagnrýni. Og þar er pottur brotinn í ádrepu Einars Más. A honum má skilja að Gagnrýnendur (með stórum staf) séu allir sem einn maður í bandalagi illsku og mannvonsku á móti rithöfundum, eða nánar tiltekið: Sérstaklega á móti þeim rithöfundum sem hafa nýjungar fram að færa á sviði bókmennta. Eins og Einar Már getur um fær hann hugtakið „Tossabandalag" að láni hjá Jonathan Swift, en reyndar fer hann ekki alveg rétt með, því orðrétt sagði Swift (í lauslegri þýðingu): „Þegar sannur snillingur kemur fram á sjónarsviðið, má þekkja hann af því, að tossarnir eru allir í bandalagi á móti honum“ (undirstrikun mín). (When a true genius appears in the world, you may know him by this sign, that the dunces are all in confederacy against him.) Og fara þá línur að skýrast: Tossarnir (illgjarnir gagnrýnendur) eru í bandalagi á móti hinu sönnu snillingum (Einari Má og kollegum hans?). Mikil er illska gagnrýnenda og mikið er píslarvætti íslenskra rithöfunda. Nú er þetta sjónarmið í sjálfu sér og kannski grundvallað á þeirri alþekktu goðsögn að bókmenntagagnrýnendur séu í raun og veru upp til hópa mis- heppnuð skáld, sem séu að hefna eigin ófara á sviði listarinnar með því að gera lítið úr snillingunum. En hvernig starfar þetta bandalag? Eg gef lítið fyrir hnyttnar fullyrðingar eins og „Þeir skoða bílinn að utan en 140
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.