Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Page 33
Austrid er rautt
kommúnistar væru þjófar. Þegar ég spurði hverju þeir hefðu stolið
frá honum titraði hann allur af æsingi og sagðist eitt sinn hafa unnið
með kommúnista sem hefði stolið frá sér húfu. „Það sannar ekki
neitt,“ sagði ég, „þó einn kommúnisti steli frá þér húfu þurfa þá allir
kommúnistar að vera húfuþjófar?“ Hjörleifur hristi höfuðið. „Það
er auðséð að þú hefur verið í skóla,“ sagði hann.
Svo nennti ég þessu þjarki ekki lengur. Einn dag sagði ég upp í
malbikinu, tók nestistöskuna mína og var hættur. Ég gaf Hjörleifi
derhúfu að skilnaði og sagði við hann þegar við kvöddumst: „Ef þú
ert svo óheppinn að mæta kommúnista í myrkri skaltu telja á þér
fingurna.“ Svo datt ég í það. Við Flosi fórum á blindafyllerí. Við
létum öllum illum látum, hringdum í ráðherrana og bönkuðum upp
hjá gömlum skólasystrum, og það var ekki runnið af okkur þegar
Flosi var búinn að segja upp hjá innheimtudeild Skipafélagsins.
Eg hafði sagt við hann: „Ef þú heldur áfram hjá innheimtudeild-
inni endarðu bara einsog hver annar stresshlunkur. Þú breytir ekki
þjóðfélaginu á meðal háaldraðra skrifstofuþræla.“ Eitthvað reyndi
Flosi að malda í móinn en smám saman viðurkenndi hann málflutn-
ing minn og þegar ég stakk upp á því að við færum austur á land og
reyndum að skapa flokksstarfinu fastan grundvöll á meðal fisk-
verkafólks faðmaði hann mig og sagði að ég væri sannur byltingar-
sinni.
Þrem kvöldum síðar sat ég hjá Gunna. Hafdís var ekki heima.
Gunni átti smá hasslús sem við reyktum á meðan við hlustuðum á
plötur. Þegar ég sagði honum frá því hvað við Flosi hefðum á prjón-
unum varð hann allur uppveðraður. „Góð hugmynd,“ sagði hann.
„Fantagóð hugmynd.“ Eg fann strax að hann langaði með og af því
að Hafdís var formaður í einni af dugmestu sellum Flokksins var
það að sjálfsögðu ekkert mál.
Gunni var sá okkar sem hafði verið lengst í Flokknum. Hann
gekk berfættur í tréklossum hvernig sem viðraði. I Flokknum var
bannað að reykja hass en við Gunni gerðum það stundum. „Arfur
hins liðna,“ sögðum við þegar logandi pípan gekk á milli okkar.
Gunni bjó til kenningar þegar hann var skakkur. Ein var sú að í
hægri mönnum safnaðist kynorkan fyrir í öxlunum. Stundum tóku
húsin á sig kynjamyndir og eitt kvöld sáum við lögregluþjón á stærð
við Hallgrímskirkju.
167