Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Side 87
Ola Larsmo Sandurinn Skeibarársandur Ef komið er úr vesturátt, ríðandi, gangandi eða með rútunni eftir nýlögðum veginum er sandurinn á hægri hönd, endalaus flatneskja svo langt sem augað eygir: samruni úr eyðimörk og árósum, allt er grátt - fábreytnin kemur skýrt í ljós á stöku stað þegar hún er rofin af himni sem blikar í vatnsfleti. Það rignir oft á sandinum. A vinstri hönd er fjallgarðurinn, krýndur Vatnajökli, íssléttu sem virðist óhagganleg, á stærð við Miðsvíþjóð, hvít og heilsteypt að sjá úr fjarska, þegar nær dregur sprungin eins og lófi erfiðismanns, blá- og brúnsprengd á stöku stað, umlukin dölum sem krímóttar, seigfljót- andi ístungur síga niðureftir. Djúpstæð þögn jökulsins veldur sterkustum áhrifum. En við hita- breytingar þegar ísbreiðan mjakast ofurhægt fram má stundum heyra það sem kallað er „söngur“ jökulsins, skerandi hljóð, sem vart verður greint, hvarflar eitt augnablik um heyranlegt tíðnisvið, en má skynja lengi eins og óhug, nagandi hroll upp eftir bakinu. Sam- kvæmt þjóðtrúnni getur þessi söngur orðið til að æra fólk, svo það gengur orðalaust á jökulinn og frýs þar í hel. Þetta eru Oræfin, sveit sem var næstum algerlega einangruð þar til fyrir fáeinum árum, á aðra hlið umlukin hafi og sandi, á hina hrjóstri og ís. Sumarið nítjánhundruð áttatíu og tvö urðu hér tveir atburðir sem endurómuðu um land allt. Annars vegar fannst hollenskt skip frá sautjándu öld, grafið undir sandinum og næstum ógerlegt að ná því upp. Það hafði siglt svo norðarlega til að sneiða hjá enskum herskipum og var að sögn drekkhlaðið óslípuðum demöntum. Hinn atburðurinn var morð, framið af rjátluðum manni. Ódæðið var unnið úti á sandinum, og tildrög þess skipta ekki máli nema fyrir þá sem næst standa morðingja og fórnarlambi. 221
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.