Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 13
Þuríður J. Jóhannsdóttir
Ur búrinu í meiri gauragang
Um íslenskar unglingabækur
Hér eru settar fram hugmyndir um mat á barna- og unglingabókum.
Höfundur telur m.a. að lesendur þurfi að geta samsamað sig persónum,
að það sé húmor í sögunum, þær séu spennandi, málfar sé frjótt og að
þær feli í sér jákvæð siðferðisgildi. Fjallað er um allmargar íslenskar
unglingabækur frá tímabilinu 1977-1991 með hliðsjón af þessu.
Gildi barna- og unglingabóka
Bókmenntir geta gegnt margvíslegu hlut-
verki í lífi lesandi fólks. Flestir lesa fyrst og
fremst sér til ánægju en margir gera líka þær
kröfur til lesefnis að það skilji eitthvað eftir
eins og sagt er. Þeir sem velta fyrir sér
lesefni barna og unglinga hafa reynt að
skilgreina hvað góð bók þarf að hafa til að
bera, m.a. í ljósi sálfræðikenninga sem
fjalla um þroska og uppeldi.
Hlutverk sögu er fyrst og fremst að hrífa
lesandann með sér og skemmta honum.
I öðru lagi hafa flestar sögur töluvert
fræðslugildi og þá er átt við fræðslugildi í
víðustu merkingu. Sumarbækurfræðaokk-
ur um líf í fjarlægum löndum eða á liðnum
skeiðum sögunnar en allar bækur fræða
okkur um fólk og samskipti þess á einhvem
hátt og það er áreiðanlega annað meginhlut-
verk bókmennta allra tíma.
I þriðja lagi geta sumar bækur beinlínis
hjálpað lesendum sínum. Fyrst koma þá í
hugann raunsæisbækur sem fjalla um
vandamál samtímans. Sögupersónur og að-
stæður þeirra verða þá á einhvem hátt lær-
dómsrík fordæmi eða víti til að varast fyrir
lesendur. Þetta er auðvitað þekkt allt frá
tímum raunsæisstefnunnar í lok síðustu
aldar. Nýrri eru kenningar sálfræðingsins
Bruno Bettelheims um það hvernig ævin-
týrin hjálpa njótendum sínum, þeim sem
hlusta eða lesa, til að vinna úr átökum sem
gerast í undirvitundinni. Kenningar hans
hafa hleypt nýju lífi í umræðu um fantasíu-
eða ævintýrabókmenntir fyrir börn og ung-
linga. Aður varþað helst taliðþeimtil tekna
að þær frjóvga ímyndunaraflið en nú er sem
sé litið svo á að gildi þeirra sé mun víð-
tækara. Spennan og baráttan við ógnvekj-
andi öfl er talin hafa gildi í sjálfri sér. Það
er þroskandi að lifa sig inn í spennandi átök
með sögupersónunni og sigra með henni,
en það er algjör forsenda ef spennan á að
TMM 1992:1
3