Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 77
mörgum skipulagshönnuðum í stað þess að
þeir skipuleggi í samræmi við landslag?
Hvers vegna fylgja hús og götur í þorpum
og bæjum ekki landslaginu í stað þess að
minna á útfærslu af vinnubúðum, fanga-
búðum? Hvers vegna eru þaklínur húsa
ekki látnar mynda eitthvert forvitnilegt
landslag? Hver ber ábyrgð á hugmynda-
legri fátækt í hönnun bæjarhverfa, kaup-
staða, þorpa og þéttbýliskjarna út um allt
land? Eru það sveitastjórnir? Ber sveita-
stjóm ábyrgð ef hún eyðileggur umhverfi
sérstæðasta byggingarkjarna á íslandi og
stærstu byggingarsögulegu minja á landinu
í Flatey á Breiðafirði með því að leyfa
byggingu orlofshúsaþyrpinga? Nei. Hún
ber enga raunverulega ábyrgð.
Engin ríkisstjórn ber ábyrgð á of stórum
fiskiskipaflota; kostnaði við Kröfluvirkjun,
gjaldþrotum refa- og minkabúa, hmni lax-
eldis, land- og gróðureyðingu af völdum
stjómleysis, flótta úr dreifðum byggðum
landsins, vondum álsamningum, mengun
náttúm íslands, eyðileggingu lands undir
stórvirkjanir, allt of háum raforkureikning-
um heimilanna, ekki einu sinni rekstri á
ríkiskassanum. Samt má rekja allt til rangra
ákvarðana í föðurhúsunum.
Aðeins eitt dæmi enn: Allir eiga að vita
að gróðavænlegt er að byggja risastórt ál ver
og fóma næstmestu gróðurvin á hálendi
Islands og einni dásamlegustu perlu lands-
ins, Eyjabökkum undir Snæfelli, og eyði-
leggja marga stóra og fagra fossa í Jökulsá
um leið. Það er þjóðhagslega hagkvæmt
þótt raforkuverðið standi ekki undir fram-
leiðslukostnaði. Það borgar sig að eyði-
leggja hálendi íslands, rista það holund-
arsári með línulögn vegna þess að jarð-
strengir þykja svo dýrir. Þið vitið að það
borgar sig að stofna til stórkostlegrar loft-
mengunar á Islandi vegna þess að álverið
sem kynni að vera byggt erlendis mengaði
meira...
Hingað til hefur þetta verið kölluð hunda-
lógik. Orkufrek stóriðja á íslandi stenst
enga samkeppni. Hún getur ekki einu sinni
starfað í eðlilegri samkeppni við íslensk
heimili, við íslenskan atvinnurekstur, jafn-
vel ekki við íslenskan landbúnað. Orku-
frekur iðnaður verður að búa við stórkost-
leg fríðindi, rangar leikreglur, annars er
hann glataður. Hann þarf stórfellda niður-
greiðslu á orku, sérhlunnindi í sköttum og
Orkufrek stóriðja á íslandi
stenst enga samkeppni. ( ... )
Orkufrekur iðnaður verður að
búa við stórkostleg fríðindi,
rangar leikreglur, annars er
hann glataður.
hvers kyns undanþágur og pukur, en um-
fram allt þá er velferð hans tekin fram fyrir
velferð þjóðfélagsins og íslenskrar náttúm.
Þetta er einfaldlega vond pólitík og
hættuleg. Hún er vond vegna þess að hún
leysir engan vanda hún býr til nýja og erf-
iðari svikamyllu andskotans en við höfum
hingað til þekkt. Hún er hættuleg vegna
þess að hún eyðileggur landið, mglar þjóð-
ina, hleður upp endalausum skuldum. Hún
étur börnin sín. Ábyrgðin er svo yfirþyrm-
andi að enginn er fær um að axla hana.
Og nú hef ég þaggað niður í öllum fugla-
söng.
En fuglasöngvar em ennþá til, sem betur
fer.
TMM 1992:1
67