Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 92

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 92
Brynjólfs Fjölnismanns. Þeir Jónas voru skólabræður frá Bessastöðum og ætíð vel til vina. Um samfundi þeirra að þessu sinni er það eitt vitað sem Jónas greinir svo kumpánlega frá í næsta bréfi til Konráðs, skrifuðu á Helgafelli hjá séra Jóni, syni séra Guðmundar á Staðastað, „einhvum tíma í ágúst“; var staddur þar 17.-18. ágúst sam- kvæmt áfangaskrá: Ég er nú nýkominn að kalla ofan af fellinu; hann séra Jón minn á kíkir sem kostaði 25 rd. í vor eð var. Nema það, ég fór að horfa í þessa „sjónpípu" og ufrað Staðarfelli og sjá! öll glerin í sjónpípunni stukku í sundur eður svo sem rifnuðu og klofnuðu og svo- leiðis, rétt eins og í þeim lá. Séra Jón minn sagði mér það væri af hinu mikla ljósi sem komið væri þar yfir bæinn síðan á dögunum að séra Pétur trúlofaði sig Sigríði bónda- dóttur. Ekkert vissi ég af því fyrra sunnudag þegar ég gaf honum Pétri svarta tík hvolpa- fulla og heitir „Kara“ — fjandinn mætti gef’onum tík í minn stað fyrst hann sagði mér ekki frá fyrirætlan sinni, selurinn svorni. Séra Pétur hefur semsé dulið Jónas þess að hann var þá í þann veginn að trúlofa sig Sigríði, dótturBoga Benediktssonará Stað- arfelli. Fyrri kona hans, Anna Sigríður Ara- dóttir, hafði andazt 1839. Engin „maddama” á Staðastað gaf fyrirmæli um þjónustu við Jónas eða bað hann um vísu, það eina sinn sem hann kom þar. Helga frá Dagverðará hefur eftir Kristínu gömlu, sögukonu sinni, að ár séra Péturs á Staðastað vilji hún sízt muna, og andar fremur köldu frá henni í hans garð. Allar minningar hennar frá Staðastað eru, sem fyrr er sagt, skýrt og greinilega bundnar við setrið í tíð séra Guðmundar Jónssonar og „maddömu" hans, sem þá hlýtur að hafa verið síðasta kona hans af þremur, Ingi- björg Arngrímsdóttir, dáin 6. desember 1833.' í upphafi Jónasarsögunnar tekur sögukonan sérstaklega fram að Þorbjörg, dóttir séra Guðmundar, hafi verið lasin laugardaginn sem Jónas bar að garði, og athygli vekur vistasending prestshjónanna til Þorgeirs, en hann var sonur séra Guð- mundar og fyrstu konu hans, enginn annar en séra Þorgeir Guðmundsson í Glólundi, sem Jónas heiðraði ríkulega með ljóðum 1839, Nii er vetur úr bœ, Þið þekkið fold og Það er svo margt efað er gáð. Þessi eindregnu tengsl Kristínar við Staðastað í tíð séra Guðmundar koma fylli- lega heim og saman við vitnisburð kirkju- bóka frá þessum árum. Kristín Jónsdóttir var fædd 11. apríl 1822 á Syðrikrossum, dóttir Jóns Þórðarsonar bónda þar og konu hans, Guðrúnar Guð- laugsdóttur. Síðar bjuggu þau lengi í Tröð- um, hjáleigu frá Staðastað. Samkvæmt húsvitjanabókum er Kristín skráð til heim- ilis í Tröðum hjá foreldrum sínum samfleytt 1829-1840, en raunar aldrei á prestssetrinu sjálfu. Árið 1841, árið sem Jónas Hall- grímsson kom í raun réttri að Staðastað, og þá til séra Péturs, eru Jón og Guðrún komin að Mel, allmiklu austar í Staðarsveit, með böm sín fimm, þar á meðal Kristínu nítján ára. Kristín kann að hafa verið vikatelpa og heimagangur á Staðastað í tíð séra Guð- mundar Jónssonar, en fundur hennar og Jónasar Hallgrímssonar virðist ættaður úr heimi hugarburðar og óska. Við það verður að una, og gildir einu þótt Helga Halldórs- dóttir leggi áherzlu á að sá fundur hafi verið Kristínu „sérstaklega minnisstæður“. Að segja sem svo að Kristín hefði eftir allt saman getað verið stödd á Staðastað þegar 82 TMM 1992:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.