Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 96
horfir, þá er nýr Babelstum í uppsiglingu. í dag hafa tæknileg skilyrði
skapast fyrir þjóðir heims að eignast eitt mál, að vísu ekki tungumál,
heldur myndmál.
Og nú mega litlu málsamfélögin hans Guðs fara að biðja fyrir sér. Því
þótt það séu lítil takmörk fyrir því hve hægt er að búa til stóra veröld með
orðum, þá er ríkjandi miðill nútímans ekki ritmál heldur myndmál. Og í
myndflæði samtímans eru lítil málsamfélög sannarlega smá vegna tak-
markaðrar getu til að bregða upp myndum. Sjálfsmynd þeirra hlýtur að
skreppa saman sem því nemur. Nái maður ekki að tjá það sem innifyrir
býr myglar það, úldnar og eyðileggst. Sama gildir um þjóðmenningu.
Það er svo dæmi sé tekið ekki öll sagan sögð þótt íslendingar hafi náð
umtalsverðum árangri í bókmenntum — ef þeir geta ekki ávaxtað þann
kjama í myndmáli stundarinnar sem er að líða em þeir úr leik og menning
þeirra fer á minjasafn þjóðanna.
Nú þegar sjónvarp hefur rótfest sig í sessi sem afþreyingarmiðill og
sáluhjálp og upplýsingagjafi og þjóðin sem glápir á leggur ekkert af
mörkum til efnisins, sækir ekki neitt í sinn sálarsarp en horfir dag eftir
dag, kvöld eftir kvöld á uppsuðu á efni gersamlega óviðkomandi þeim
jarðvegi sem hún er sprottin úr — þá hlýtur slík þjóð að flosna upp frá
menningarverðmætum sínum í tveimur til þremur kynslóðum. Sprett-
hlaupari sem sæti öllum stundum við að spila bridds hlyti að koma að
þeim punkti að hann hætti að vera hlaupari og jafnvel þótt hann hefði
ekki gáfur til að verða góður briddsspilari þá yrði hann áreiðanlega ennþá
verri spretthlaupari.
Það sem vofir yfir litlum my ndsamfélögum í dag er andlegur vergang-
ur, hættan á að dragast upp hægt og bítandi uns þeirra sér ekki lengur stað
í myndiðu samtímans þar sem hún byltist í tveimur eða þremur klunna-
legum mótum.
Hvað er þá til ráða? Hvers getum við vænst? Að Guð bijóti niður
sjónvarpstuminn? — Varla. Auk þess sem sjónvarpstæknin er sannar-
lega undursamleg í upplýsingamætti sínum og einmitt þessi síðustu
misseri höfum við horft á í sjónvarpi hvemig kúgunarvald gufaði upp
eins og fyrir geminga sem þegar allt kemur til alls áttu rót að rekja til
86
TMM