Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 105
sem hún lifir einkennist af því að hún vemdar sjálfa sig gegn öllu óþægilegu, öllum tilfinning- um, allri umhyggju, allri áhættu, allri ást. Hún bælir sína eigin sögu, vemdar sig gegn uppmna sínum og rótum, gegn móður sinni og systur. Og það er systirin, Marta, sem þvingar Nínu til að vaka yfir móðurinni. Sjálfsgreining Nínu felur í sér uppgjör við Mörtu og í sögunum af formæðrunum má sjá bæði hliðstæður og andstæður við sögu þeirra systra. Við hlið Sunnevu (Nínu) stendur hin skyldurækna Friðmey (Marta) sem elskar Jakob (Gústa) sem endurgeldur ekki ást hennar. Við hlið Katrínar (Mörtu) stendur Elín (Nína) sem hefur brugðist henni og lengra nær sá saman- burður ekki. Við hlið verkakonunnar Þórdísar (Mörtu) stendur systirin Mana (Nína), mynd- listarkonan misheppnaða, snobbuð, henti- stefnumanneskja — og skáld. En þegar kemur að síðustu konunum tveimur byrja málin að flækjast því að bæði Marta og María eru dætur Þórdísar og gildi hennar eru gildi þeirra beggja þegar allt kemur til alls. Maríu líka. Sér til furðu uppgötvar Nína að Marta á til íroníu, ljóðrænu og missi, hún er ekki bara hin skyldurækna Marta Biblíunnar, hún er líka María. Sjálf heitirNína fullu nafni Katrín Sunn- eva. Og það er eðlilegt að amman, Katrín, sé sú formæðranna sem hún á verst með að skilja. „Ég“ og „hinir" Hvað fær Katrínu til að taka Elínu aftur inn á heimilið og fá henni sitt eigið nýfædda bam til fósturs? Katrín gerir þetta gegn vilja manns síns og Sunnevu gömlu. „Ömurlegt", „svo hallæris- legt að maður getur ekki einu sinni hlegið“ segir Nína á stefnumóti þeirra Katrínar í fortíðinni: . . . hún hlustar ekki þessi stúlka, vill ekki heyra. Vill ekki skilja hvernig það var, hvem- ig gleðin flúði og dagamir urðu myrkir og langir. Hvemig allt gegnsýrðist hægt og hægt af einhverju annarlegu, einhverjum illum æs- ingi, skúmkenndum og slepjugum sem límd- ist við allt, eitraði frá sér, magnaðist, þar til hann sprengdi af sér öll bönd, eyðilagði eitt- hvað sem síðan hefúr ekki aftur orðið heilt. Að þegar svo er komið er ekki lengur um sök að ræða eða fyrirgefningu heldur eitthvað allt annað. Ef til vill lífið sjálft. (70-71) Þegar Katrín stendur andspænis missinum velur hún lífið í stað þess að velja meiri missi, eyði- leggja meira. Franska skáldið og bókmenntafræðingurinn Héléne Cixous talar um kvenlega og karlmann- lega afstöðu til ástarinnar (Kritik 71, 1985). Þegar Cixous talar um „hið kvenlega" vísar hún til þess að konur hafa í menningu Vesturlanda verið skoðaðar sem frávik frá hinu eðlilega sem sé karlmaðurinn og hugarheimur hans. Karl- mennirnir hafa verið hið „eina“, hið „rétta“ — konur hafa verið „hinn“ í menningu og heim- speki. „Hið kvenlega" er þannig staða eða af- staða sem hefur ekkert með kyn að gera í kenningum Cixous. Sömuleiðis kallar hún hið dulvitaða oft „konuna“ á sömu forsendum, þessi eru þau myrku svæði sem hafa verið bæld og vísað út úr upplýstri umræðu og hún kallar raunaralla uppreisn gegn ríkjandi hugsun „kon- una“. Kvenleg afstaða til ástarinnar einkennist af því að hugveran er geld og hefur horfst í augu við missi sinn. Hún hefur engu að tapa, getur gefið og elskað af nautn, án einhverra trygg- inga, án ótta við aðskilnað eða missi. Þessi afstaða getur viðurkennt að lífið hefur óöryggi í för með sér en það getur hin karlmannlega afstaða ekki. Hún er sjálfhverf, afmörkuð og takmörkuð og miðast við að ná valdi yfir öðr- um. Hún sparar og safnar en eyðir ekki ástinni. Þetta er fallísk afstaða sem einkennist af ótta við geldinguna. ÞettaerafstaðaNínu í upphafi bók- arinnar Meðan nóttin líður og einkennir fram- komu hennar við elskhuga sinn. Svona afstaða stendur í vegi fyrir allri list- rænni sköpun, öllu örlæti og opnum hug, að sögn Cixous. I greininni „Von der Szene des Unbewussten zur Szene der Geschicte“ (í Das Sexuelle, die TMM 1992:1 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.