Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 108
og til dæmis Guðmundur, en svo má ekki skíra litla bróður Jesús! Systkini Sossu falla meira og minna í skugga hennar en foreldramir eru dregnir nokkuð skýr- um dráttum. Móðirin er glaðlynd og bjartsýn og virðist skilja hvað í Sossu býr. Hún segir henni að hún geti orðið fegurðardís ef hún hætti að gretta sig og skæla og það er hún sem kallar Sossu sólskinsbarn. Faðirinn er aftur á móti alvörugefinn maður og gjörsneyddur öllu ímyndunarafli. Hann erráðþrota gagnvart skap- ofsanum í Sossu sem hann kallar bestíu og himpigimpi þegar honum ofbýður. En alvöru- gefni hans skýrist að nokkru leyti þegar móðir hans kemur í heimsókn: „Það er ekki nokkur leið að koma henni ömmu til að hlæja, og þegar mamma hlær segir hún grafalvarleg: „Guð fyr- irgefi þér galgopaháttinn, fullorðinni konunni! “ Pabbi er líka alvarlegur og á bágt með að þola flissið í okkur. Kannski hefur hann aldrei mátt hlæja þegar hann var strákur?“ (19). í einni kös eins og fé í fjárhúsi Sagan gerist á sveitabæ við ónefndan fjörð en jafnframt búskapnum stundar heimilisfaðirinn sjóinn ásamt elstu sonunum. Lífsbaráttan er hörð hjá þessari barnmörgu fjölskyldu sem öll hírist í einni baðstofukytru. Allir þurfa að leggja hönd á plóginn um leið og þeir geta og jafnvel fyrr. Strax í upphafi er greinilegt að sagan á að gerast „í gamla daga“ en hvenær nákvæmlega verður ekki ljóst fyrr en á síðustu blaðsíðunni. Þar kemur fram að skylda eigi öll böm til að vera í skóla í fjóra vetur en það mun hafa verið árið 1907. (Framar í sögunni er reyndar talað um að gullæði hafi gripið um sig í Ameríku sem ég veit ekki betur en hafi verið um miðja síðustu öld.) Fjölskyldan vinnur hörðum höndum, börnin eru böðuð á hálfsmánaðarfresti og guðsorð í hávegum haft. Þau virðast ekki gera sér margt til skemmtunar nema þá helst að lesa á veturna. Pabbinn les líka upphátt á sunnudögum úr Bibl- íunni eða Jónsbók (Vídalínspostilla?) og mamman kennir krökkunum sálma og vers. Eins og við er að búast í sögu um barnmarga fjölskyldu er talsvert fjallað um barneignir í þessari bók. Sossa hefur látið telja sér trú um að þegar karl kyssi konu á munninn láti hann barn í magann á henni. Þetta er nú kannski svolítið skrítið af svona skýrri sveitastelpu, sérstaklega þar sem henni finnst barnsfæðing og kálfsburð- ur hliðstæðir atburðir. Maður býst einhvem veginn við því af Sossu að hún spyrji sig þá að því hver hafi kysst kúna. En við fáum líka að vita hvert er álit utanaðkomandi fólks á ómegð- inni á heimilinu. Kaupmanninum finnst að bændur ættu að hugsa fyrst og framkvæma svo en hrúga ekki niður krökkum án þess að geta séð fyrir þeim. Amma Sossu lætur í ljós van- þóknun sína á þessum krakkaskara við mömmu hennar og talar um óráðsíu. En mamman bendir gömlu konunni á að tala við son sinn um þetta. Svo virðist vera sem konan líti á sig eingöngu sem þolanda í samlífi þeirra hjóna. Þetta sjón- armið kemur fram á fleiri stöðum. Hún segir til dæmis þegar bóndi hennar talar vonleysislega um að alltaf bætist við barnahópinn að hann hafi við sjálfan sig að stríða í því efni. Þessi alvöru- gefni, guðhræddi og vinnusami maður virðist haldinn einhverjum veikleika sem hann ræður ekkert við. Hann er alltaf að setja börn í magann á mömmu sem þjáist fyrir það og reyndar öll fjölskyldan. Þessi ömurlega mynd af kynlífi og barneignum í gamla daga er kannski athygli- verð fyrir fullorðið fólk en ég sé ekki hvaða tilgangi það þjónar að bregða henni upp svona hvað eftir annað í bamabók. I fyrri hluta sögunnar er ekki um eiginlega atburðarás að ræða heldur er brugðið upp svip- myndum úr lífi fjölskyldunnar. Kaflarnir eru ákaflega mislangir, sumir mynda heillegar frá- sagnir en aðrir em örstuttir og fjalla um afmark- að efni. Sagan hefst í sumarbyijun en í miðri bók er allt í einu aftur komið vor og þá hefst samfelld frásögn. Kaupmaðurinn kemur ásamt syni sínum og heimtar kúna upp í skuldina. En Sossu tekst með skapofsa sínum og hreinskilni 98 TMM 1992:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.