Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Ég hef sungið alveg frá því að ég
man eftir mér. Ég byrjaði í krútta-
kór Langholtskirkju þegar ég var
fimm ára gamall og fór svo í Söng-
list, söng- og leiklistarskóla og í
Drengjakór Reykjavíkur,“ segir
Benedikt Gylfason en hann hefur
verið í Drengjakórnum síðastliðin
fjögur og hálft ár. Benedikt er ekki
nema 12 ára gamall en hefur þrátt
fyrir það vakið mikla athygli fyrir
hæfileika sína á sviði sönglistar og
kemur fram á fjölda tónleika um
þessi jól ásamt þekktum listamönn-
um. Til að mynda mun Benedikt
koma fram á hátíðartónleikum í
Grafarvogskirkju, Frá ljósanna há-
sal, þann 30. desember ásamt þeim
Garðari Thor Cortes og Margréti
Eiri.
Benedikt er mjög áhugasamur á
sviði listarinnar og lærir dans og á
píanó þegar hann er ekki á æfing-
um með Drengjakór Reykjavíkur.
Hann æfir ellefu sinnum í viku og
segir lykilinn að því að allt gangi
upp vera að skipuleggja sig vel og
segir námið ekki undanskilið í
skipulaginu en hann gengur í Foss-
vogsskóla.
Benedikt á ekki langt að sækja
söngáhugann en faðir hans, Gylfi
Ástbjartsson, syngur í Karlakór
Reykjavíkur og syngja þeir feðgar
báðir á tónleikunum Frá ljósanna
hásal í Grafarvogskirkju. Annar
fjölskyldumeðlimur kemur einnig
fram á tónleikunum, systir Bene-
dikts, Helena Gylfadóttir, og syngja
þau systkinin saman eitt lag á tón-
leikunum. Benedikt og faðir hans
komu einnig fram á tónleikum
Karlakórs Reykjavíkur í Hallgríms-
kirkju um síðustu helgi og í vikunni.
Benedikt segir nóg að gera hjá
sér síðustu vikurnar fyrir jólin,
hvort sem hann sé að syngja, dansa
eða leika, og hann hlakkar til að
slappa af í faðmi fjölskyldunnar yfir
jólin þegar törninni lýkur.
Byrjaði 5 ára í krúttakór
Nóg að gera hjá 12 ára söngvara síðustu vikur fyrir jól
Morgunblaðið/Golli
Fagur söngur Karlakór Reykjavíkur með tónleika í Hallgrímskirkju.
Benedikt Gylfason 12 ára syngur einsöng alveg eins og engill.
Færðin hefur ekki farið framhjá neinum en það er snjór á fleiri stöðum en á
götum því á gangstéttum er fannfergið einnig mikið. Þar vinna hetjurnar
sem hreinsa ruslakör landsmanna og það er ekki létt starf.
Morgunblaðið slóst í för með þeim Rúnari Þór Friðrikssyni og Stefáni Inga
Gunnarssyni, starfsmönnum Gámaþjónustunnar, þegar þeir tóku rusl á
Grettisgötu í Reykjavík. Þeir hafa verið að störfum þrátt fyrir veðurofsann
og fannfergið og dregið þungar tunnur gegnum snjóinn. Það er ekkert grín
eins og blaðamaður komst að raun um þegar hann prófaði að draga tunnu
frá geymslu og að sorpbílnum, rúma 20-30 metra. Þeir Rúnar og Stefán taka
tvær til fjórar slíkar tunnur í hverju stoppi.
Mikið gengið og miklu lyft
Stefán hefur eitt sinn mælt hvað hann gekk á hverjum degi og voru það þó-
nokkrir kílómetrar. Með þyngslunum í tunnunum er kannski ekki að undra
að þeir félagar séu í góðu formi.
„Við förum á venjulegum degi á 90-120 staði og þetta er ágætis líkams-
rækt. Stór kör eru í kringum 50-60 kíló og þegar snjórinn bætist við þá tvö-
faldast þyngdin,“ segir Stefán um leið og þeir Rúnar rjúka inn í geymslu að
sækja tunnu.
Vonast er til að hægt verði að losa allar tunnur fyrir jól eins og los-
unardagatal segir til um og hefst vinnan aftur 27. desember. benedikt@mbl.is
Tafir Rúnar og Stefán reyna að vinna upp tafir, sem orðið hefur á sorp-
hirðunni vegna veðursins og snjóþyngslanna að undanförnu.
Hálkuverja Víða hefur þurft að sleppa að losa tunnur þar sem aðkomuleiðir að þeim voru ógreiðfærar. Nauðsynlegt
er að moka tröppur á aðkomuleiðum og frá sorpgeymslum og hálkuverja til að greiða götu starfsfólks við störfin.
Hetjurnar á göt-
um borgarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Hetjur Þeir Rúnar Þór Friðriksson og Stefán Ingi Gunnarsson hafa ýtt fjölmörgum bílum sem hafa setið fastir und-
anfarna daga. Hér ýta þeir Suzuki Grand Vitara sem sat fastur á planinu við Bílrúðuna við Grettisgötu.
Hverfisgata 4
101 Reykjavík
s: 537 4007
info@hverfisgalleri.is
www.hverfisgalleri.is
opið 11-17 þri-fös & 13-16 lau
Georg Guðni
Jeanine Cohen
Guðjón Ketilsson
Kristinn E. Hrafnsson
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Magnús Kjartansson
Harpa Árnadóttir
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Hildur Bjarnadóttir
Sigurður Árni Sigurðsson
Hrafnhildur Arnardóttir
Tumi Magnússon