Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Borgarstjórnarfundur í vikunnivar venju fremur gagnlegur,
en þar kom fram hvaða sjónarmið
reka fulltrúa vinstri meirihlutans
áfram þegar kemur að bílaeign og
bílanotkun borgarbúa.
Þessi sjónarmið hafa út af fyrirsig komið fram áður, en voru
óvenjulega skýrt fram sett að þessu
sinni hjá Hjálmari Sveinssyni, borg-
arfulltrúa Samfylkingarinnar og
formanni Umhverfis- og skipulags-
ráðs.
Hjálmar sagði að borgin væri aðfara úr einu kerfi í annað, úr
„bílmiðuðu“ kerfi í
annað sem ekki væri
eins „bílmiðað“.
Nýja kerfið gerirekki aðeins
ráð fyrir lágmarks-
fjölda bílastæða fyr-
ir hverja íbúð, heldur setur kröfur
um hámarksfjölda. Tilgangurinn er
sá, að sögn Hjálmars, að koma í veg
fyrir aukningu bílaumferðar. Með
færri bílastæðum minnki umferðin.
Það er með öðrum orðum skýrstefna borgarinnar að þvinga
fólk til að hætta að nota bíla og
þvingan sem sett er á borgarbúa er
ekki aðeins að þrengja götur, heldur
einnig að fækka bílastæðum. Og það
á ekki aðeins að fækka stæðum við
heimili fólks, heldur einnig við
vinnustaði, til að koma í veg fyrir að
fólk geti notað bílana sína til að fara
í vinnuna.
Þetta er auðvitað með miklumólíkindum og vekur furðu að
svo róttæk stefna skuli hafa verið
tekin upp án þess að verulegar um-
ræður hafi átt sér stað og afleið-
ingar stefnunnar kynntar rækilega
fyrir borgarbúum, sem munu þurfa
að búa við afleiðingar hennar um
langa framtíð.
Hjálmar
Sveinsson
Þvinga sett
á borgarbúa
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.12., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló -5 skýjað
Kaupmannahöfn 5 þrumuveður
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 10 skúrir
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 7 skýjað
London 8 léttskýjað
París 11 skúrir
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 8 skýjað
Vín 14 skýjað
Moskva 0 snjókoma
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -5 frostrigning
Montreal -5 skýjað
New York 1 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 18 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:09 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:54 14:33
DJÚPIVOGUR 11:01 14:50
Skipaskrá og
sjómannaalm-
anak fyrir árið
2015 er komin
út. Bókinni er
dreift frítt til
útgerða skipa
og báta sem
eru í rekstri,
einnig til fram-
kvæmda- og
útgerðarstjóra stærri fyrirtækja
auk fleiri aðila, segir í tilkynningu.
Útgefandi er fyrirtækið Árakló slf
og er þetta níunda útgáfa þess.
Auglýsingar kosta bókina.
„Skipaskráin og sjómannaalm-
anakið er hefðbundin handbók sjó-
manna með upplýsingum um sjáv-
arföll, vita- og sjómerki, veður og
sjólag, fjarskipti, öryggismál og
fleira. Í skipaskrá er að finna öll
skip og báta sem eru á skrá hjá
Samgöngustofu. Skránni er skipt í
tvo hluta, mynda- og textaskrá. Í
myndaskrá eru skip og bátar sem
eru í rekstri. Í textaskrá eru upp-
lýsingar um önnur skip og báta.
Dreifingu bókarinnar lýkur fyrir
áramót. aij@mbl.is
Skipaskrá
komin út
Öll skip og bátar
sem eru á skrá
Rúmlega 95% af þeim ferðamönn-
um sem komu til landsins í sumar
sögðu að ferðin hefði staðið undir
væntingum. Þá telja 83% ferða-
manna líklegt að þau muni ferðast
aftur seinna til Íslands.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í könnun Ferðamálastofu
meðal erlendra ferðamanna í sum-
ar. Hlutfall þeirra sem sögðu ferð-
ina standa undir væntingum er nán-
ast það sama og í síðustu
vetrarkönnun þegar hlutfallið var
96%.
Langflestir, eða 86,9%, voru hér í
fríi og 84,3% aðspurðra sögðust
koma á eigin vegum.
Íslandsferðir stóð-
ust væntingar er-
lendra ferðamanna
Kynntu þér tilboðin á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Allt að
23.000 k
r.
afsláttur
ámann
Byrjaðu nýja árið á
hlýjum stað. Sólarferðir
til Tenerife og Kanarí í
janúar á tilboðsverði.
Burt úr kuldanum
Janúarsól á frábæru verði