Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
kemur í ljós að til þess að vara
hafi geymsluþol þarf alveg gríð-
arlegt magn af sykri og aukaefn-
um þannig að þeir sem borða mik-
ið af tilbúnum mat neyta mun
meira af sykri og aukaefnum og
það held ég að sé ekki sérlega gott
fyrir okkur,“ segir hún. Án efa
hugsa einhverjir að langan tíma
taki að matreiða krásir frá grunni.
Marta María segir það alls ekki
vera svo og uppskriftirnar inni-
haldi ekki of mörg hráefni. „Hrá-
efnalistinn er yfirleitt ekki mjög
langur og markmiðið með þessu er
að fólk eldi heima hjá sér og mat-
reiðslan sé einföld, taki ekki lang-
an tíma og að maturinn sé um leið
góður.“
Úthugsuð sætindi
Bókin inniheldur sem fyrr
segir fyrst og fremst heilsu-
samlegar uppskriftir. Í henni er þó
einn kafli sem tileinkaður er
„uppáhaldssyndum“ Mörtu Maríu
og það eru sætindin. Hún borðar
þau ekki oft en þegar svo ber und-
ir er líka eins gott að vanda valið.
„Það sem mér finnst skipta máli er
að eitthvað sé til sem heitir
„spari“. Eitthvað sem við gerum
einstaka sinnum en séum ekki
dags daglega í sykurmarineringu,“
segir Marta María. „Maður þarf
eiginlega að vera á þeim stað að
maturinn gefi manni næringu og
geri það að verkum að maður geti
framkvæmt allt það sem mann
langar til en þetta má ekki verða
togstreita,“ segir Marta María
Jónasdóttir, höfundur matreiðslu-
bókarinnar MMM. Það er því hinn
gullni meðalvegur sem best er að
fylgja til að halda jafnvæginu og
þess vegna er vel við hæfi að hér
fylgi myndir og upp skriftir að
tveimur syndsamlega girnilegum
eftirréttum sem upplagt er að
spreyta sig á þegar tilefnið er sér-
stakt, því sætindin eru „spari“.
dagsins
Mörtu Maríu þykir mat-
málstíminn mikilvæg-
asta stund dagsins og
þá á að vera ró og næði
á heimilinu.
Höfundur Marta María Jónasdóttir hefur í
fjölda ára safnað uppskriftum og birtast
þær sem eru í uppáhaldi í nýrri bók hennar.
Kalifornískur karamellubúðingur.
Þessi kaka er alltaf bökuð á jól-
unum í mínum foreldrahúsum
og eftir að ég varð fullorðin
lærði ég að búa hana til sjálf.
Hún er því bökuð miklu oftar
en bara á jólunum. Það sem
gerir þessa köku sérstaklega
góða er kremið.
175 g smjör
175 g súkkulaði
3 egg, aðskilin
180 g hrásykur
1 dl muldar
heslihnetur
60 g hveiti, spelt eða
möndlumjöl
1 tsk. skyndikaffiduft
Bræddu smjörið og súkku-
laðið saman í potti. Taktu pott-
inn af hellunni þegar blandan
er slétt, helltu henni í skál og
hrærðu eggjarauðum og hrá-
sykri saman við. Blandaðu svo
þurrefnunum saman við. Stíf-
þeyttu eggjahvíturnar í hræri-
vél og blandaðu þeim mjög var-
lega saman við súkkulaði-
blönduna. Bakaðu kökuna í 30
mínútur við 175°C.
Ekta súkkulaðikrem
150 g mjúkt smjör
2 eggjarauður
200 g flórsykur
50 g hrátt kakóduft
1 dl rjómi
½ dl sterkt kaffi
Settu allt hráefnið í hræri-
vélarskál, þeyttu það saman og
settu á kökuna.
Ekta súkkulaðikaka
Kalifornískur
karamellubúðingur (fyrir 10)
Ef ég ætti að velja mér einn
stað í heiminum til að búa á
yrði Kalifornía fyrir valinu.
Ekki bara út af heimsins besta
karamellubúðingi, sem ég
smakkaði þar í fyrsta skipti,
heldur út af matarmenning-
unni, stemningunni, veður-
farinu og heilsubyltingunni
sem hefur orðið þar.
Þessi karamellubúðingur
kemur frá veitingastaðnum
Gjelina á Venice Beach og voru
kokkar staðarins svo elskulegir
að deila uppskriftinni með les-
endum LA Times. Í upp-
haflegu uppskriftinni var kara-
mellusósa sem hellt var yfir
búðinginn í lokin en mér finnst
hann smakkast betur án henn-
ar og svo er töluvert minna
vesen að gera búðinginn svona.
9 eggjarauður
6 msk. smjör
360 ml púðursykur, þjappaður
í mælikönnuna
½ msk. salt
½ msk. lífrænt vanilluduft
800 ml rjómi
240 ml sýrður rjómi (má
sleppa)
sjávarsalt til skreytingar
Hitaðu ofninn í 160°C. Þeyttu
eggjarauðurnar í stórri skál uns
þær freyða vel og settu þær svo
til hliðar. Bræddu smjörið á
pönnu við meðalhita. Hrærðu
púðursykri og salti saman við
smjörið. Bættu vanilluduftinu
út í og láttu malla uns blandan
fer að dökkna og gefur frá sér
hnetu- og karamellukenndan
ilm (það tekur um 5 mínútur).
Lækkaðu hitann og helltu
rjómanum rólega saman við
sykurbráðina. Hrærðu stöðugt í
uns allt er samlagað og suðan
komin upp. Taktu pönnuna af
hitanum. Pískaðu u.þ.b. 250 ml
af rjóma-sykurblöndunni vel
saman við eggjarauðurnar.
Helltu svo afganginum út í og
gættu þess að píska vel. Síaðu
búðinginn í gegnum grisju.
Settu 10 tebolla eða lítil form
í ofnskúffu eða stórt eldfast
bökunarform og hafðu 2-3 cm á
milli. Fylltu hvert form til hálfs
með búðingi. Settu ofnskúffuna
inn í ofn og helltu sjóðandi vatni
varlega í hana. Settu álpappír
yfir. Bakaðu búðinginn í um það
bil 45 mínútur en athugaðu
hann eftir 30 mínútur. Bök-
unartíminn er misjafn eftir
stærð formanna, getur verið 35-
55 mín. Búðingurinn á að hrist-
ast mjúklega þegar komið er við
hann. Taktu ofnskúffuna gæti-
lega út og láttu búðinginn
kólna.
Berðu búðinginn fram við
stofuhita, skreyttu hvern
skammt með sýrðum rjóma og
stráðu örlitlu salti út á.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Góðar jólagjaf
ir
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Faxafeni 8 // 108 Reykjavík
Sími 534 2727 // www.alparnir.is
www.alparnir.is
Góða gæði
Betra verð
✓
✓
Mikið úrval af
svefnpokum
frá PINGUIN
og ROBENS
100% merine ullarfatnaður
á alla fjölskylduna
Lúffur og hanskar
á börn og fullorðna,
Tökum notaðan skíða- og
brettabúnað upp í nýjan
• Svigskíði
• Fjallaskíði
• Gönguskíði
• Snjóbretti
Fjölbreytt úrval af
bakpokum frá SALOMON,
LOWE, ALPINE og PINGUIN
20%
jólaafsláttur
af bakpokum
jólatilboð 20% afsl.Það er alltaf gaman að borða undir berum himni en nú um helgina verður í Fóg-
etagarðinum við Aðalstræti í Reykjavík skyndiútgáfa af KRÁS götumatarmark-
aðnum. Þar ætla ýmsir veitingastaðir í borginni að gera götuútgáfu af þeim
mat sem þeir bjóða alla jafna upp á. Einnig verður boðið upp á jólaglögg og
kakó. Þeir sem taka þátt í Jólakrás eru m.a. Uno, Bergsson mathús, Grillið á
Hótel Sögu, DILL, Coocoos nest, Kjallarinn, Sandholtsbakarí, Smurstöðin í
Hörpu og Austurlandahraðlestin.
Jólakrás á Pop-up-götumarkaði
Gleði Stemningin er ævinlega góð á götumarkaði, þessi er frá því í sumar.
Götumatur og annað góðgæti