Morgunblaðið - 20.12.2014, Side 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpivogur
Loksins hefur vetur konungur
gengið í garð í Djúpavogshreppi og
taka íbúar honum fagnandi undir
endurteknu norðurljósatrafi sem
leikið hefur með himinskautum í
bakgrunni Búlandstinds.
Rétt eins og gerist og gengur
þá lagar samfélagið sig að dyntum
náttúrunnar og er skammdegið því
að venju lýst upp í fallega skreyttum
bæ.
Og nú þegar frostið bítur kinn
og snjógráði liggur á jörð hafa menn
sem áður margt sér til dægrastytt-
ingar á Djúpavogi og undir þessum
kringumstæðum lifir og dafnar
menningin sem aldrei fyrr með hefð-
bundnum viðburðum á aðventunni. Í
aðdraganda þessara jóla hafa einnig
litið dagsins ljós nýjar bækur úr
smiðju heimamanna og skal þar
nefna til sögunnar bók eftir Hrönn
Jónsdóttur, „Árdagsblik“, sem hefur
hlotið góða kynningu á svæðinu. Þá
verður ekki látið hjá líða að minnast
á hið stórkostlega rit dr. Gísla Páls-
sonar um Hans Jónatan, „Maðurinn
sem stal sjálfum sér“, en segja má að
þar sé um einstakt bókmenntaverk
að ræða þar sem bjargvætturinn
litli, Djúpivogur, tók blökkumanni
opnum örmum, sem önnur samfélög
og þjóðir höfðu þá útskúfað í fáfræði
og kynþáttahatri fyrri tíma.
Í þessum anda lifir samfélagið á
Djúpavogi í óbreyttri mynd í dag og
leggur sig nú sem fyrr fram um að
taka vel á móti nýjum íbúum og
gestum.
Jafnhliða réttmætri kröfu um
sjálfsagða aðild að nýtingu á hinni
sameiginlegu auðlind vinnur sveitar-
félagið að því að draga fram nýjar
áherslur og verkefni inn í samfélagið
með fjölbreytnina að leiðarljósi, ekki
síst til að laga samfélagið enn betur
að breyttum kröfum nýrra kynslóða
sem hafa menntað sig til fjölbreyttra
starfa. Djúpavogshreppur hefur því
á síðustu mánuðum og vikum verið
að leggja sérstaka áherslu á að
skapa skilyrði fyrir ný störf og verk-
efni á svæðinu og hefur töluvert
áunnist í þeim efnum og áfram verð-
ur haldið í þeirri sókn.
Fyrir skemmstu var opnað
Frumkvöðlasetur á Djúpavogi undir
nafninu „Djúpið“ með aðstöðu fyrir
heimamenn fyrir verkefni af ýmsum
toga, í Djúpinu verður einnig starfs-
stöð Nýsköpunarmiðstöðvar og
Austurbrúar sem mun taka form-
lega til starfa á komandi vetri.
Þá verður einnig sett á stofn
starfsstöð Minjavarðar Austurlands
á Djúpavogi frá og með marsmánuði
sem er einnig mikið fagnaðarefni, en
fáir staðir á Íslandi hafa af fleiri og
merkari menningarminjum að státa
en einmitt Djúpavogshreppur. Í
sveitarfélaginu er t.d. unnið að hús-
verndarverkefnum af miklum metn-
aði og er Djúpavogshreppur þátt-
takandi í tveimur slíkum verkefnum
um þessar mundir, annars vegar
með endurbyggingu á hinu glæsi-
lega Faktorshúsi og hinsvegar
gömlu Djúpavogskirkju. Auk þessa
hefur Djúpavogshreppur látið vinna
sérstaklega vandaða húsakönnun
sem nær til allra eldri og merkari
húsa í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið hefur því á und-
anförnum vikum og mánuðum lagt
mikla vinnu í að leita margvíslegra
leiða til mótvægisaðgerða þar sem
áhersla hefur verið lögð á að sækja
fjölbreytt störf og verkefni til að
mæta því litríka og fjölbreytta sam-
félagi sem Djúpivogur er og þar sem
innviðirnir eru enn sterkir sem áður.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Búlandstindur Norðurljósatrafi hefur leikið með himinskautum.
Skilyrði sköpuð fyrir ný störf
og verkefni á komandi árum
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Óbyggðanefnd hefur kveðið upp úr-
skurði í ágreiningsmálum á svo-
nefndu svæði 8 norður, það er að
segja Húnavatnssýslu vestan
Blöndu ásamt Skaga. Í úrskurði sín-
um féllst hún á kröfur íslenska rík-
isins um að eftirfarandi landsvæði á
Skaga væru þjóðlendur: Almenn-
ingur á Skaga, Skrapatunguafrétt,
ágreiningssvæði vegna Fannlaug-
arstaða og ágreiningssvæði vegna
Skálahnjúks.
Hafnaði nokkrum kröfum
Nefndin féllst auk þess á að Auð-
kúluheiði, Forsæludalskvíslar,
Landsvæði sunnan Gríms-
tunguheiðar, Lambatungur, land-
svæði sunnan Haukagilsheiðar og
Lambatungna og hluti Kornsár-
tungna í Húnavatnshreppi væru
þjóðlendur. Einnig féllst nefndin á
að austurheiði Víðidalstunguheiðar,
landsvæði sunnan Víðidals-
tunguheiðar, Húksheiði og Stað-
arhreppsafréttur í Húnaþingi
vestra, syðri hluta, væru þjóðlendur.
Hún hafnaði þó kröfum íslenska
ríkisins um að Reynistaðarafrétt á
Fjórtán svæði úr-
skurðuð þjóðlendur
Óbyggðanefnd kveður upp úrskurð
Svæðin Yfirlitskort nefndarinnar.
Skaga væri þjóðlenda. Þá hafnaði
hún því einnig að Grímstunguheiði,
Haukagilsheiði og Sauðadalur í
Húnavatnshreppi væru þjóðlendur.
Í Húnaþingi vestra, syðri hluta, var
því hafnað að vesturheiði Víðidals-
tunguheiðar, Aðalbólsheiði og Efra-
núpsheiði væru þjóðlendur auk þess
sem því var hafnað að Breiðaból-
staðarafrétt / Engjabrekka í Vatns-
nesi væri þjóðlenda.
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni,
góðu handverki, stöðugum prófunum
og vandlega völdum efnum.
Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn
á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.com
DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950
D
U
X®
,D
U
XI
AN
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
AB
20
12
. Gæði og þægindi síðan 1926
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Frídagar í kringum jólahátíðina eru
nokkuð margir í ár og eru samhang-
andi frídagar fimm talsins ef að-
fangadagur er talinn með.
Skilgreiningar
á brandajólum
má rekja til 17.
aldar og eru
breytilegar á
milli alda. „Þetta
er eilíft vandamál
vegna þess að
brandajól hafa
verið svo breyti-
leg í gegnum ald-
irnar en í stuttu
máli þýðir það bara þegar frídagar
eru sem flestir. Það fer eftir því
hvaða skilgreiningu menn notast við
hvort þeir telji jólin í ár falla undir
skilgreininguna á brandajólum en
skilgreiningunum hefur fjölgað og
helgidögum fækkað,“ segir Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur.
Áður fyrr voru þriðji og jafnvel
fjórði dagur jóla helgidagar en þeim
fór fækkandi á 18. öld. Í staðinn varð
laugardagur frídagur en líkt og
helgidagar eru aðrir frídagar sífelld-
um breytingum háðir og mismun-
andi eftir starfsstéttum.
Upphaflega var orðið brandajól
einungis notað þegar jóladag bar
upp á mánudag. Samkvæmt einni
nýjustu skilgreiningu á brandajólum
sem séra Jónas Jónasson frá
Hrafnagili ritaði á 20. öld segir að
brandajól séu þegar fjórheilagt er
eða þegar fjórir frídagar hanga sam-
an. Gerist slíkt þegar jóladagur fell-
ur á mánudag eða fimmtudag, líkt og
í ár.
„Stóru brandajól í ár“
Að framansögðu er ljóst að menn
hafa lagt mismunandi skilning í orð-
ið brandajól, einkum hvað séu stór
og lítil brandajól. Að sögn Árna falla
jólin í ár undir nýjustu skilgrein-
ingar á stórum brandajólum. „Ef við
skilgreinum aðfangadag sem frídag
verða fimm samhangandi frídagar
þessi jólin. Verða því stóru brandajól
í ár,“ segir Árni.
Menn hefur einnig greint á um
forliðinn „branda-“ í orðinu branda-
jól. Er algengasta skýringin sú að
merkingin komi frá eldibrandi eða
eldiviði. Þurftu menn að draga að
mikinn eldivið fyrir jólin þar sem
þeir máttu ekki vinna á jólafrídög-
unum. Þetta er þó ekki vitað með
vissu og kemur nafngiftin efalaust til
með að valda mönnum heilabrotum
áfram.
Morgunblaðið/Þórður
Jólafrí Margir Íslendingar gleðjast eflaust yfir stóru brandajólunum í ár.
Landsmenn fá
stóru brandajól
Brandajól verða þegar fjórheilagt er
Árni
Björnsson