Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Starfsmenn 3X, Skagans og Þor-
geirs og Ellerts á Akranesi keppast
þessa dagana við að setja upp nýjan
vinnslubúnað og raunar allt kerfi á
millidekki um borð í Málmey SK 1.
12-16 manns koma að þessu verki
daglega, en auk þeirra koma aðrir
starfsmenn frá þessum fyrirtækjum
og öðrum beint og óbeint að verk-
efninu.
Skipinu var fyrr í haust breytt úr
frystiskipi í ísfisktogara í Póllandi
og má segja að aðgerðarými hafi
verið „tilbúið undir tréverk“ þegar
skipið kom til Akraness 11. desem-
ber. Ráðgert er að skipið geti hald-
ið til veiða upp úr miðjum janúar.
3X á Ísafirði og Skaginn á Akra-
nesi þróuðu vinnslubúnaðinn í sam-
vinnu við Matís og fyrirtækin Fisk
Seafood og Ice Protein á Sauð-
árkróki og með honum verður fisk-
urinn kældur í mínus eina gráðu
um borð í veiðiskipum án þess að ís
komi þar nærri. Samið var við Fisk
Seafood um að þessi búnaður yrði
settur um borð í Málmey. Kælingin
er tölvustýrð og fer fram með því
að nýta samþættingu varmaskipta,
kælimiðilsins glycol, salts og sjávar.
Myndgreining notuð
Unnið var að heildarlausn á
vinnsludekki og er markmiðið með
hönnun vinnslukerfisins að há-
marka gæði hráefnis og þar með
geymsluþol, þar sem allur fiskur á
að fá rétta og jafna meðhöndlun.
Miðað er við að hægt sé að afkasta
við slægingu allt að 60 fiskum á
mínútu. Eftir aðgerð er hver fiskur
myndgreindur og tegund og stærð
ákvörðuð.
Ljósmyndir/Guðmundur Ólafur Guðmundsson
Á Akranesi Unnið við samsetningu á kælisniglum, en gjörbreyting verður á millidekkinu.
Málmey Við skipshlið er kælisnigill (Rotex) í þremur hlutum, sem verður settur saman á millidekki.
Málmey til veiða með nýj-
an vinnslubúnað í janúar
Vandaverk Armar settir saman en þeir stýra fiskinum eftir myndgreiningu.
Búnaður Unnið við lagnaleiðir en margir koma að uppsetningunni.
Fiskur kældur
án íss Endur-
nýjun á millidekki
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta eru tæplega tuttugu ára göm-
ul göng sem á að fara að endurnýja,“
segir Kristinn Hauksson, rafeinda-
tæknifræðingur og verkefnastjóri
hjá íslensku verkfræðistofunni
EFLA, en stofan hefur að undaförnu
verið í lykilhlutverki í samtengingu
byggða í Norður-Noregi. Framund-
an er endurnýjun á tvennum sam-
síða jarðgöngum, Trömsöysund-
tunnelen, sem tengja á 72 þúsund
manna byggð á Tromsö-eyju við
meginland Noregs. Göngin eru aðal-
umferðaræðin frá eyjunni til megin-
landsins en um þau aka að meðaltali
um fimmtán þúsund bílar á sólar-
hring.
Kostar um tvo milljarða
Göngin eru hvor um sig um það bil
þrír og hálfur kílómetri að lengd en
breytingunum er ætlað að auka um-
ferðaröryggi vegfarenda.
„Við höfum verið að vinna mikið í
jarðgangamálum fyrir Norðmenn-
ina, bæði nýjum göngum og gömlum.
Þá höfum við aðallega verið að sjá
um rafbúnað, lýsingu, fjarskiptabún-
að og þess háttar. Þetta verður eitt
af fjölmörgum verkefnum sem við
höfum verið með þarna á undanförn-
um árum en er þó langstærsta og
viðamesta verkefni sem við höfum
verið með til þessa,“ segir Kristinn.
„Það á að fara að bjóða verkefnið
út núna en það er gert ráð fyrir að
það muni kosta um tvo milljarða að
endurnýja göngin. Það þarf að end-
urnýja búnaðinnn í þeim auk þess
sem allar kröfur eru orðnar miklu
meiri. Það verður sett upp mjög full-
komið myndavélakerfi en með því
verður hægt að sjá öll göngin enda á
milli. Svo verður ný radartækni not-
uð, þá skynja radarar meðal annars
hvort einhver óeðlileg hreyfing sé í
göngunum, til að mynda ef eitthvað
dettur af flutningabíl,“ segir Krist-
inn að lokum.
Tengja saman
byggðir í Noregi
Íslenskt fyrirtæki endurnýjar jarðgöng
Endurnýjun Jarðgöngin eru um
þrír og hálfur kílómetri að lengd.
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
www.aurum.is
Frönsku hágæða ilmvötnin frá
L’artisan Parfumeur eru tilvalin jólagjöf.
ILMURINN
FYRIR JÓLIN