Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsunum Faxafeni) · 108 Reykjavík · Sími 553 3450 · www.spilavinir.is · Sendum um land allt.
Spil í jólapakkann!
BEZZERWIZZER
Nýtt spurningarspil á íslensku.
2007-14
ára7
Nýtt
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Blómlegt safnaðarstarf fer fram í
hinni aldargömlu Hafnarfjarðar-
kirkju. Kirkjan var vígð 20. desem-
ber 1914, sem þá bar upp á 4.
sunnudag í aðventu, og því rétt öld
liðin frá vígslunni. Af því tilefni
verður hátíðarmessa í Hafnarfjarð-
arkirkju klukkan 11.00 á morgun.
Biskup Íslands, frú Agnes M.
Sigurðardóttir, mun prédíka og
Kristján Valur Ingólfsson vígslu-
biskup þjónar fyrir altari ásamt
séra Jóni Helga Þórarinssyni sókn-
arpresti, Þórhildi Ólafs presti kirkj-
unnar og þeim séra Gunnþór Inga-
syni og séra Guðbjörgu
Jóhannesdóttur sem bæði hafa
þjónað við kirkjuna. Unglingakór
Hafnarfjarðarkirkju frumflytur
nýja messu, Missa brevis, eftir Þóru
Marteinsdóttur. Verkið var samið
fyrir kórinn í tilefni af aldarafmæli
kirkjunnar. Stjórnandi er Helga
Loftsdóttir og Anna Magnúsdóttir
leikur undir á píanó. Guðmundur
Sigurðsson, organisti Hafnarfjarð-
arkirkju, mun leika á orgel og
stjórna söng Barbörukórsins. Að
messu lokinni verður kirkjugestum
boðið að þiggja veitingar í Hásölum
Strandbergs.
Eftir hádegi á morgun verður op-
ið hús í kirkjunni frá klukkan 13.00
til 15.00. Þar verður á dagskrá org-
elleikur, ritningarlestur og kyrrð. Í
boði verður kakó og piparkökur.
„Það er mikill hugur í okkur að
halda uppi góðu safnaðarstarfi og
engin ellimerki á því,“ sagði séra
Jón Helgi Þórarinsson, sóknar-
prestur Hafnarfjarðarkirkju. Hann
tók við embættinu fyrir rúmu ári.
Blómlegt sönglíf í kirkjunni
Hann sagði að kórastarf hefði
löngum verið blómlegt í kirkjunni.
Þar starfa bæði barnakór og ung-
lingakór sem njóta mikilla vinsælda.
Meira en 100 börn og unglingar
taka þátt í kórastarfinu. Helga
Loftsdóttir stjórnar kórnum ásamt
Önnu Magnúsdóttur.
Kirkjukórinn heitir Barbörukór-
inn og honum stjórnar Guðmundur
Sigurðsson, organisti Hafnarfjarð-
arkirkju. Í Barbörukórnum syngur
fólk sem hefur lært söng og það
skiptir því með sér að syngja við
messur. Einnig heldur Barbörukór-
inn tónleika og syngur við útfarir og
aðrar athafnir.
Guðsþjónustur og sunnudagaskóli
eru á sunnudögum auk þess sem
messað er á öðrum helgidögum.
Einnig fer fram margþætt starf í
kirkjunni á virkum dögum.
„Yfir vetrartímann erum við með
hálftíma langar messur klukkan
8.15 á miðvikudagsmorgnum. Svo er
morgunverður á eftir. Þetta hefur
verið gert í nokkur ár og það er
fastur hópur sem sækir þessar góðu
stundir,“ sagði sr. Jón Helgi. Stund-
um hafa verið helgistundir í hádeg-
inu og er rætt um að endurvekja
þær. Þá fer fram þróttmikið ferm-
ingarstarf yfir veturinn.
Kvenfélag hefur starfað við Hafn-
arfjarðarkirkju um áratugaskeið og
styður það á ýmsan hátt við safn-
aðarstarfið auk þess að vera fé-
lagsstarf kirkjukvenna.
Hafnarfjarðarkirkja tekur þátt í
samstarfi kirknanna í Hafnarfirði
sem m.a. tengist starfi eldri borgara
og samverustundum á Sólvangi.
Unnið er að stefnumörkun safnað-
arstarfsins í tengslum við afmæl-
isárið. Áformað er að efla barna- og
æskulýðsstarf sem og að auka fjöl-
breytni í helgihaldi og fræðslu.
Hafnarfjarðarkirkja var tekin í
gegn og máluð að innan árið 2008.
Tvö nýleg pípuorgel eru í kirkjunni.
Annað er níu radda barokk-orgel og
hitt 25 radda í þýsk-rómantískum
stíl. Orgeltónleikar eru í kirkjunni í
hverjum mánuði yfir vetrartímann.
Hafnarfjarðarkirkja í heila öld
Meira en 100 börn og unglingar taka þátt í kórastarfinu Unnið verður að stefnumörkun safnaðar-
starfsins á afmælisárinu Hátíðarmessa á morgun í tilefni af 100 ára vígsluafmæli Hafnarfjarðarkirkju
Morgunblaðið/Golli
Sóknarprestur Jón Helgi Þórarinsson segir safnaðarstarf fjölbreytt í hinni 100 ára gömlu Hafnarfjarðarkirkju.
Hafnfirðingar áttu kirkjusókn
að Görðum á Álftanesi áður en
Hafnarfjarðarkirkja var byggð.
Hafnarfjörður fékk kaupstað-
arréttindi 1908 og í kjölfar þess
komst skriður á áform um bygg-
ingu kirkju í bænum.
Rögnvaldur Ólafsson arki-
tekt, sem teiknaði m.a. Húsavík-
urkirkju og Vífilsstaðaspítala,
teiknaði kirkjuna. Framkvæmdir
hófust haustið 1913 og lauk
smíðinni á aðventu 1914. Þór-
hallur Bjarnarson biskup vígði
svo kirkjuna 20. desember 1914.
100 ára
vígsluafmæli
HAFNARFJARÐARKIRKJA
VÍGÐ 20. DESEMBER 1914