Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 26
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Mikilvægt er að í uppfærðri áætlun
um losun fjármagnshafta verði lögð
áhersla á samvinnu og hvata til þátt-
töku í því skyni draga úr áhættu
samhliða afnámsferlinu. Þannig
kæmi meðal annars til greina í þeim
efnum að setja útgönguskatt á
greiðslur úr landi. Gæta þarf að stöð-
ugleika þegar stigin verða skref í átt
til losunar hafta sem þýðir að ferlið
verður að vera tengt þróun efna-
hagsmála og greiðslujafnaðar þjóð-
arbúsins hverju sinni.
Þetta segir Peter Dohlman, yfir-
maður sendinefndar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS), í samtali við
Morgunblaðið. Sendinefndin lauk í
gær tveggja vikna heimsókn sinni til
Íslands í tengslum við efnahagsáætl-
un íslenskra stjórnvalda og sjóðsins
sem lauk í ágúst 2011.
Leysa þarf upp Íbúðalánasjóð
Fram kemur í áliti sendinefndar
AGS að þrátt fyrir jákvæðar efna-
hagshorfur, sem ættu að styðja við
áætlun um losun hafta, þá sé enn
veikleikar fyrir hendi í íslensku efna-
hagslífi. Þar ber helst að nefna
óvissu vegna afnáms fjármagns-
hafta, þrýsting á launahækkanir í
komandi kjaraviðræðum og veika
stöðu Íbúðalánasjóðs. Telur sjóður-
inn að stjórnvöld ættu að huga að því
að leysa upp Íbúðalánasjóð með
skipulegum hætti til að lágmarka
kostnað ríkisins og kerfisáhættu.
Aðspurður hvort þörf sé á meira
aðhaldi í rekstri ríkisins – en áætl-
aður afgangur á fjárlögum næsta árs
samsvarar 0,2% af landsframleiðslu
– sagði Dohlman að fjárlögin væru að
mestu í samræmi við áform ríkisins
um lækkun skulda. Hann nefndi hins
vegar sérstaklega að mikilvægt væri
að stjórnvöld leituðu leiða til að
skapa svigrúm í ríkisrekstrinum svo
hægt yrði að auka fjárfestingu hins
opinbera, einkum í heilbrigðismál-
um. Jafnframt þyrfti að ganga
lengra í því að færa skattbyrði frá
beinum sköttum yfir í óbeina skatta.
AGS telur að breytingar á virðis-
aukaskattkerfinu séu af hinu góða og
muni auka skilvirkni þess.
Morgunblaðið hefur áður greint
frá því að tillögur ráðgjafahóps
stjórnvalda um afnám hafta geri ráð
fyrir því að lagður verði 35% út-
gönguskattur á alla fjármagnshreyf-
ingar úr landi. Slíkur skattur myndi
þá meðal annars ná til mögulegra
greiðslna slitabúa föllnu bankanna til
erlendra kröfuhafa, hvort sem þær
yrðu framkvæmdar í erlendum
gjaldeyri eða íslenskum krónum. Do-
hlman svaraði því ekki hvort til
greina kæmi að slíkur skattur næði
einnig til útgreiðslna úr slitabúun-
um. Hann sagði að ýmsar leiðir væru
til skoðunar í tengslum við uppfærða
áætlun um afnám hafta og þar kæmi
útgönguskattur meðal annars til
greina. Benti Dohlman á að í afnáms-
áætlun Seðlabankans frá 2011 hefði
verið að finna tillögur um útgöngu-
skatt á aflandskrónueigendur.
Í áliti sendinefndar AGS er fagnað
því sem gert hefur verið til undirbún-
ings áætlunar um losun hafta. Sá ár-
angur komi fram í því samkomulagi
sem gert var við slitabú Landsbank-
ans (LBI) og bættum skilningi á
þeim vanda sem við er að etja við los-
un hafta. „Leiðin sem valin verður í
nýrri áætlun um losun fjármagns-
hafta mun móta Ísland til framtíðar,“
segir í áliti sendinefndarinnar. Að-
spurður telur Dohlman ekki rétt að
sett verði sérstök tímamörk við
framkvæmd áætlunar um afnám
hafta enda væri slíkt ekki í samræmi
við þá nálgun að afnámsferlið þurfi
að ráðast af aðstæðum hverju sinni.
Styrkja samkeppnisstöðuna
Fram kemur í áliti sendinefndar-
innar að aukin áhersla á horfur í
greiðslujöfnuði myndu styðja við af-
nám hafta. Bent er á að eftir hrun
fjármálageirans hafi viðskiptajöfn-
uður landsins batnað verulega vegna
gengisfalls krónunnar sem hefur
stutt við útflutning og ferðaþjónustu.
Þessa bættu samkeppnisstöðu telur
AGS að þurfi að styrkja enn frekar
með stefnu sem hlúir að fjárfestingu
og sparnaði – þar með talið fjárfest-
ingu í innviðum – þar sem áhersla sé
lögð á að laun á vinnumarkaði hækki
ekki umfram framleiðniaukningu.
Skynsamlegt að sýna varfærni
Morgunblaðið/Ómar
AGS Sendinefnd sjóðsins lauk í gær tveggja vikna heimsókn sinni.
Sendinefnd AGS telur mikilvægt að í uppfærðri áætlun um losun hafta sé lögð áhersla á hvata til þátt-
töku Leiðin sem er farin mun „móta Íslands til framtíðar“ Auka þarf fjárfestingu hins opinbera
Álit sendinefndar AGS
» Styrkja þarf fjárhagsleg
tengsl Íslands við umheiminn.
Slíkt er forsenda hagvaxtar og
hagkvæmari fjárfesting-
arkosta.
» Sýna ætti varfærni við losun
hafta í ljósi ástands heimsbú-
skaparins.
» Sjóðurinn undirstrikar mik-
ilvægi sjálfstæðs seðlabanka
og traustar varrúðarreglur fyr-
ir fjármálakerfið.
26 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Munið að slökkva
á kertunum
Veljið kertastjaka sem eru óbrennanlegir,
stöðugir og leiða ekki hita
● Launavísitalan hefur hækkað um
6,6% síðastliðna 12 mánuði.
Vísitalan í nóvember var 494,7 stig
og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði,
að því er kemur fram á vefsíðu Hagstof-
unnar. Vísitala launa sýnir breytingar á
verði vinnustundar fyrir fasta samsetn-
ingu vinnutíma.
Þá hefur vísitala kaupmáttar launa
hækkað um 5,5% síðustu 12 mánuði,
en vísitalan hækkaði um 0,7% frá fyrri
mánuði. Sé litið til 12 mánaða hækk-
unar vísitölu kaupmáttar þá hefur hún
aðeins einu sinni áður mælst hraðari á
þessari öld, en það var í júní 2007, að
því er kemur fram í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
Hraðasti vöxtur kaup-
máttar frá júní 2007
! "
#!$
#!
%
!
#
%%
""$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!""
# %
#
$
"
#""!
$$
"%
%
! #$
#!#
#
$!
!
#"!
$!
""
#! %
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið
að greiða fyrir fram hluta lána frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem
fengin voru í tengslum við efna-
hagsáætlun stjórnvalda sem naut
stuðnings AGS.
Fram kemur í tilkynningu frá
Seðlabankanum að stjórnvöld
hafi nú endurgreitt 83% af láninu
frá AGS, en um er að ræða endur-
greiðslur að jafnvirði um fimmtíu
milljarða króna sem voru upp-
haflega á gjalddaga á árinu 2015.
Heildarfjárhæð lánsins frá AGS
nam um 253 milljörðum. Eftir-
stöðvar lánsins eftir þessa fyr-
irframgreiðslu eru um 43 millj-
arðar króna.
Í tilkynningu Seðlabankans
segir að ákvörðunin sé tekin í
tengslum við skuldastýringu sem
miðar að því að greiða niður lán
til skemmri tíma. Tekið sé mið af
tiltölulega rúmri lausafjárstöðu
Seðlabankans, meðal annars
vegna inngripa á innlendum gjald-
eyrismarkaði. Fram hefur komið
að hrein gjaldeyriskaup bankans
nemi um 95 milljörðum það sem af
er ári.
Endurgreiðslan hefur áhrif á
skuldir Seðlabankans en ekki
skuldir ríkissjóðs vegna þess að
lánið frá AGS var tekið af Seðla-
bankanum. Dregst gjaldeyrisforði
Seðlabankans saman sem nemur
þessari fjárhæð. Stærð forðans í
lok nóvember nam um 566 millj-
örðum.
Fyrirframgreiðir 50 milljarða
STJÓRNVÖLD HAFA ENDURGREITT 83% AF LÁNINU FRÁ AGS
Morgunblaðið/Árni
Endurgreiðsla Eftirstöðvar
AGS-lánsins eru 43 milljarðar.