Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
unum, einkum þeim minni.
Til hliðar standa svo ýmis Evr-
ópuríki, og fjarlægari ríki, og telja
að beita verði mun alþjóðlegri og
sameiginlegri viðmiðum.
Ábyrgð stjórnvalda
og fyrirtækja
Enn sem komið er vantar víðtæka
samninga um aðgerðir í loftslags-
málum milli aðalleikaranna á verald-
arvísu. Stefnan ætti að snúast um að
draga olíuvinnslu saman í takt við
hraða orkuumbyltingu á heimsvísu,
leita ekki víðar að þessum hráefnum
í bili og ganga ekki frekar en orðið
er á land, gróður, búsvæði og auð-
lindir í eigin löndum eða öðrum.
Stjórnmálaöfl, ríkisstjórnir og stór-
fyrirtæki draga lappirnar vegna eig-
in hagsmuna eða þrýstings utan að.
Greinilega vantar líka mikið á að
upplýsingagjöf, einkum til almenn-
ings, um orkumál, ógnir hlýnandi
loftslags, jafnt sem tækifæri eða
leiðir til aðlögunar, sé næg. Úr því
verður varla bætt nema með ábyrgri
forystu stjórnvalda og opinberra
stofnana. Það sama gildir þegar
horft er á tregðu stórfyrirtækja og
alþjóðlegra fyrirtækjarisa til að
skera niður starfsemi með hefð-
bundnum orkugjöfum, leggja stórfé
í þróun til annarrar orkuöflunar,
miðla meiri orku til fólks en minni til
stóriðju og taka ábyrgð á sínum
þætti í vandamálum sem hljótast af
brennslu jarðefnaeldsneytis. Sýnt
hefur verið fram á minni kostnað og
meiri hagnað af tafarlausum við-
brögðum við hlýnuninni og afleið-
ingum hennar í stað þess að reyna
að lágmarka skaða eftir ár eða ára-
tugi. Það ætti að vera mörgum
hvatning til að gera betur.
Og sú ætlan gengur því miður
ekki upp, að koma meira en helmingi
mannkyns sem hefur orðið á eftir í
lífsgæðum, meðal annars vegna ný-
lenduafskipta margra ríkja og sein-
komu að borði iðnþróunar, til jafns
við þau hin með stóraukinni orku úr
jarðefnaeldsneyti. Þar verður að
reyna á rýmri tímaramma, þol-
inmæði og aðrar leiðir en ofurhraða
og hefðbundna orku- og iðnvæðingu.
Þar verður að finna efni til nýsköp-
unar og þróunarsamvinnu á for-
sendum græns hagvaxtar.
Samvinna og
stjórnun norðursins
Samvinna innan Norðurskauts-
ráðsins að nokkrum sáttmálum SÞ
og undir gamla sáttmálanum um
fyrirkomulag mannlegrar virkni á
Suðurskautslandinu gefur góð fyr-
irheit. Auk fjölda samstarfsverk-
efna, sem gengið hafa vel, er komið
fram heildstætt samkomulag um leit
og björgun á hafsvæði norðursins.
Í hverri ræðu ráðamanna á al-
þjóðavettvangi er ítrekað að sam-
vinna á norðurslóðum og stjórnun á
hafsvæðinu norðan strandríkjanna
skuli vera friðsamleg og á sjálf-
bærum eða umhverfisvænum nót-
um. Því ber að fagna.
Samtímis er ýmislegt við ummæl-
in að athuga. Sjálfbærnihugtakið er
notað að hluta með röngum for-
merkjum um stefnu sem miðar að
umfangsmikilli námavinnslu á landi
og vinnslu og notkun jarðefnaelds-
neyta. Ábyrgð vinnslulandsins á um-
hverfisvernd nær líka til sölu og
notkunar efnanna í öðrum löndum.
Nú þegar hafa orðið til ásteyting-
arsteinar. Stærstir eru stefna sem
byggist á víðtækum hafsbotnsrétt-
indum langt út frá ströndum ríkja og
krafa um ríkjabundna stjórnun alls
hafsvæðisins í hánorðri. Með því er
átt við að fimm strandríki taki yfir
stjórnun hafsvæðis frá landgrunni
þeirra allt til norðurpólsins. Yfirlýs-
ing þess efnis liggur þegar frammi
sem sameiginlegur vilji fimm ríkja,
Kanada, Bandaríkjanna, Rússlands,
Noregs og Danmerkur, eftir lokaðan
fund fyrir fáeinum árum.
Hér þurfa strandríkin fimm að
gefa eftir ýtrustu hafsbotnskröfur,
halda sig við eigin auðlindir innan
200 mílna marka og leyfa alþjóða-
samfélaginu að líta á miðju Norður-
Íshafsins sem svæði undir vernd-
arvæng mannkyns. Það verður þá
efni alþjóðlegs samkomulags að
ábyrgjast hafsvæðið og stjórna því.
Annað og enn flóknara verkefni lýt-
ur að því að endurskoða hafrétt-
arsáttmálann og vinda ofan af órétt-
mætum kröfum um auðlindir langt
út á öll helstu hafsvæði sem verða að
fá að vera ósnert, mannkyni til góða.
Fimm ára stöðvun?
Dr. William Moomaw, prófessor
emeritus við Tufts-háskóla í Banda-
ríkjunum, hélt erindi um orkuauð-
lindir á norðurslóðum við Háskólann
í Reykjavík 30. október 2014.
Á fundinum lagði hann fram mat á
því sem kallast tækifæri og áskor-
anir í orkuvinnslu á norðurslóðum.
Niðurstaðan hans er einföld: Það
verður að sameina þjóðir, sem við
eiga, um fimm ára bann við frekari
ásókn í olíu- og gaslindir á norð-
urslóðum. Samtímis er leitað lausna
til þess að vinda ofan af fyrirætl-
unum um gas- og olíuleit og núver-
andi vinnslu eins og unnt er. Til-
lagan er róttæk og vafalítið mætir
hún harðri andstöðu. Hún er engu að
síður mikilvæg sem umræðuefni og
stefnumál til að vinna að í sem allra
nánustu framtíð. Alþingi og rík-
isstjórn eiga að styðja tillöguna.
Meira: Meira á mbl.is/greinar
Höfundur er jarðvísindamaður, rit-
höfundur og áhugamaður um norð-
urslóðir.
Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is
Plast geymlukassar
margar gerðir og stærðir
Heildsöludreifing
HÁTÍÐ Í BÆ
Njóttu þess besta um hátíðarnar og bjóddu upp á
girnilega hátíðarskyrtertu frá Mjólku.
Ég kem hér á framfæri innilegu
þakklæti til Morgunblaðsins vegna
viðtals við mig í tilefni af 95 ára af-
mælinu mínu 15. nóvember síðastlið-
inn. Einnig sendi ég hjartans þakkir
til allra sem minntust afmælis míns
með hlýju og kærleika. Þar sem ég
mun ekki senda nein jólakort til Ís-
lands á þessu ári vil ég nota tækifær-
ið og óska öllum ættingjum og vinum
á Íslandi gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
Jóhanna Wilson,Winnipeg,
Manitoba, Kanada.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Þakklæti og jólakveðja frá Winnipeg
Jól Jólakveðjur eru hluti af jólahaldinu.