Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 trompet, 1 píanó, 1 harmóníum. Menn fengu hinsvegar að sjá og heyra raunverulega sinfón- íuhljómsveit sumarið 1926 þegar Jón Leifs kom til höfuðstaðarins með drjúgan hluta af Fílharm- óníusveit Hamborgar sem hélt nokkra tónleika í bænum. Hvað sem því leið hélt Hljómsveit Reykjavíkur áfram starfsemi í ýmissi mynd og stærð en ekki ætíð undir sama nafni þar til Sin- fóníusveit Íslands var stofnuð árið 1950. Næsti stórviðburður í tónlistar- lífi Reykjavíkur var stofnun Tón- listarskólans haustið 1930. Jón Leifs hafði reyndar hvatt mjög til stofnunar slíks skóla næstum tíu árum fyrr, en verið sem oftar nokkuð á undan sínum tíma. Heimsókn hljómsveitarinnar frá Hamborg 1926 og tónflutningur á Alþingishátíðinni fyrr um sumarið 1930 hafði á hinn bóginn hleypt tónelskum mönnum kapp í kinn og opnað augu ýmissa fyrir nauðsyn þess að eignast og mennta hljóð- færaleikara. Ungur Austurrík- ismaður, dr. Franz Mixa, hafði verið fenginn til að undirbúa flutn- ing tónlistar á Alþingishátíðinni og haft góð orð um að koma aftur sem aðalkennari ef skóla yrði komið á fót. Á aðalfundi Hljómsveitar Reykjavíkur seinna um sumarið var ákveðið að stofna tónlistar- skóla. Hann var settur í fyrsta sinn 5. október 1930 í hinum sögu- fræga hátíðasal Menntaskólans og Páll Ísólfsson ráðinn skólastjóri. Nemendur fyrsta veturinn voru um 40 talsins. Kennsla fór í fyrstu fram í Hljómskálanum sem félagar í Lúðrasveit Reykjavíkur höfðu reist á árunum 1922–1923 og er fyrsta húsið og lengi hið eina á Ís- landi sem byggt var sérstaklega fyrir iðkun tónlistar. Í nokkur ár á fimmta áratugnum var kennt í hinu ófullgerða Þjóðleikhúsi, eftir að breska hernámsliðið skilaði rík- inu þessari birgðageymslu sinni, en árið 1948 var flutt í húsið Þrúð- vang við Laufásveg 7 sem frú Margrét Zoëga tengdamóðir Ein- ars Benediktssonar skálds hafði látið reisa árið 1918. Annar stórviðburður á sviði tón- listarmála í árslok 1930 var stofn- un Ríkisútvarpsins. Það gegndi að sjálfsögðu margþættu menningar- hlutverki en kynning tónlistar og ekki síst fjölþjóðlegrar klassískrar tónlistar var einn af nýstárlegustu meginþáttum í starfsemi þess og vissulega ekki vinsæll af öllum lengi vel. Páll Ísólfsson var ráðu- nautur útvarpsins í tónmálum frá upphafi til ársins 1959 að und- anskildu árinu 1937–1938 þegar hann vék úr sæti fyrir Jóni Leifs. Árið 1932 voru stofnuð tvö félög sem áttu eftir að skipta miklu máli fyrir allt tónlistarlíf í landinu. Annað var Félag íslenkra hljóð- færaleikara (FÍH) 28. febrúar. Fjórtán tónlistarmenn sóttu stofn- fund þess og fyrsti formaður var kjörinn Bjarni Böðvarsson sem gegndi þeirri stöðu næstu ellefu ár. Hitt var Tónlistarfélag Reykja- víkur 27. júní. Þar voru saman komnir tólf áhugamenn um tónlist, en ekki starfandi tónlistarmenn. Margir þeirra munu hafa unnið öt- ullega að tónlistarmálum und- angengin ár, ekki síst í tengslum við fjáröflun, en nú þótti þeim tímabært að mynda félagsskap sem tæki að sér að reka bæði Hljómsveit Reykjavíkur og Tón- listarskólann. Báðar þessar stofn- anir höfðu átt við mikinn fjárhags- vanda að stríða. Tólfmenningarnir, sem voru í reynd lokaður félagsskapur, fengu brátt viðurnefnið ‚postularnir‘. Forystumaður þeirra var ungur athafnamaður, Ragnar Jónsson forstjóri smjörlíkisgerðarinnar Smára og löngum kenndur við hana. Aðrir voru Björn Jónsson kaupmaður, Haukur B. Gröndal verslunarmaður, Hálfdan Eiríks- son kaupmaður, Helgi Lárusson framkvæmdastjóri, Kristján Sig- urðsson póstfulltrúi, Ólafur Þor- grímsson lögfræðingur, Óskar Jónsson prentari, Sigurður E. Markan verslunarmaður, Stefán Kristinsson bókari, Tómas Alberts- son prentari og Þórarinn Björns- son póstfulltrúi. Þeir söfnuðu styrktarfélögum og skiptu með sér verkum. Einn hópur sá um Tón- listarskólann, annar um Hljómsveit Reykjavíkur og hinn þriðji um sýn- ingar á óperettum og heimsóknir erlendra tónsnillinga. Ekki fór hjá því að öðru hverju yrðu ýfingar milli sumra starfandi tónlistarmanna og þessara „ólærðu kaupahéðna“ sem stundum var tal- að um í þeim dúr í hita umræðunn- ar og ekki hleyptu neinum öðrum inn í klúbbinn. Til dæmis sóttist Félag íslenskra hljóðfæraleikara eftir því árið 1939 að fá fulltrúa inn í Tónlistarfélagið en við því var ekki orðið. Árið 1940 voru þriðju samtökin stofnuð og nefndust Fé- lag íslenskra tónlistarmanna (FÍT). Það var fagfélag og fyrsti formað- ur þess var Þórarinn Guðmunds- son. Félagið gaf út tímaritið Tón- listin undir ritstjórn Hallgríms Helgasonar árin 1941–1947 eins og áður hefur komið fram. Misklíð hljóðfæraleikara og Tón- listarfélagsins snerist að sjálfsögðu nokkuð um kjaramál. Launamál þeirra sem léku á vegum Tónlist- arfélagsins voru algerlega í lausu lofti nema þeirra sem jafnframt voru kennarar við Tónlistarskól- ann. Strengjasveit starfaði innan skólans og auk þess voru nokkrir hljóðfæraleikarar fastráðnir við Ríkisútvarpið og spiluðu þar ýmist sem tríó, kvartett, sextett eða hljómsveit. Að því kom haustið 1943 að FÍH ákvað að stofna symfóníuhljómsveit. Það varð að veruleika 25. janúar 1944 og fyrsti formaður hennar var kosinn -Hall- grímur Helgason. Páli Ísólfssyni var boðið að stjórna fyrstu tón- leikum hljómsveitarinnar, en hann mun hafa færst undan vegna tengsla sinna við Tónlistarfélagið. Í stað hans kom til skjalanna Ró- bert Abraham Ottóson. Hljóm- sveitin hélt fimm tónleika í Tjarn- arbíói vorið 1944, en skömmu seinna leystist hún upp, meðal annars vegna skorts á æfinga- húsnæði auk þess sem menn helt- ust úr lestinni vegna annarrar vinnu. Næsta tilhlaup í þessa átt var stofnun Symfóníuhljómsveitar Reykjavíkur, og var í rauninni nýtt nafn á Hljómsveit Reykjavíkur. Í henni hafði verið fjölgað svo nú taldi hún um 40 manns. Fyrstu tónleikar hennar voru haldnir í Austurbæjarbíói 20. janúar 1948 undir stjórn dr. Victors Urbancic. Meðal annars lék Rögnvaldur Sig- urjónsson þar 4. píanókonsert Beethovens. Næstu tónleikar sveit- arinnar voru í mars sama ár undir stjórn Róberts A. Ottósonar og þar lék Egill Jónsson klarín- ettkonsert Mozarts. Þriðju tónleik- arnir voru í maí sama ár undir stjórn Victors Urbancic en upp úr því tók starfinu aftur að hnigna. Þá voru reyndar ekki nema tvö ár þar til Sinfóníuhljómsveit Íslands, sú sem enn lifir, var stofnuð. Það var árið 1950, sama ár og Sig- ursveinn lauk námi við Tónlistar- skólann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.