Morgunblaðið - 20.12.2014, Qupperneq 47
47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Nóg af spennu
Leyndarmálið
bbmnn
Texti: Jo Salmson.
Myndir: Natalia Batista.
Íslensk þýðing: Anna R. Ingólfsdóttir.
Bókabeitan, 2014. 124 bls.
Leyndarmálið er
fyrsta bókin í bókaröð
um seiðfólkið, sem ger-
ist á ótilgreindum
tíma í ótil-
greindum
heimi sem svip-
ar þó til Evr-
ópu á dögum
Rómaveldis.
Sagan segir frá
vinunum Sól,
Ariel og Enos.
Þau koma úr ólík-
um áttum og eiga í raun það eitt sameig-
inlegt að búa á herragarði sem kallast
bara setrið. Straumhvörf verða í lífi
þeirra þegar leyndarmál varðandi Sól
kemur í ljós.
Það er ekki mikill texti í bókinni
og hún er því fljótlesin. Það er þó
nóg af spennu þegar líða tekur á
bókina og búið er að kynna söguhetj-
urnar rækilega fyrir okkur. Manga-
legar myndirnar eru líka skemmti-
legar.
Þetta er kjörin bók fyrir unga og
óvana lesendur.
Lífleg frásögn
Tommi Teits - Undraheimurinn minn
bbbmn
Myndir og texti: Liz Pichon.
Íslensk þýðing: Gerður Kristný.
JPV, 2014. 238 bls.
Tommi Teits er klár
hress strákur í fimmta
bekk. Hann er klár í teikn-
ingu, spilar á gítar og
hrekkir táningssystur sína,
svo helstu áhugamál hans
séu talin.
Megnið af sögunni gerist
í skólanum, en það kemur
ekki að sök því það er alltaf
eitthvað í gangi hjá Tomma
í skólanum – hann en einkar
lunkinn við að finna nýjar og nýjar leiðir til að
klekkja á óvinum sínum um leið og hann reynir að
ganga í augun á stelpunni sem hann er skotinn í.
Þetta er afskaplega lífleg frásögn og teikningar
og ýmislegt skraut lífga upp á hana. Það gerist í
sjálfu sér ekki mikið en manni leiðist ekki við lest-
urinn.
Saga ætluð Selfyssingum
Jólasaga úr Ingólfsfjalli
bmnnn
Texti: María Siggadóttir.
Myndir: Ellisif Malmo Bjarnadóttir.
Bókasmiðjan, 2014. 39 bls.
Þessi bók segir
frá því er jólasvein-
ar í Ingólfsfjalli
vakna og halda á
Selfoss að
skemmta börnum
bæjarins. Í upphafi
er sagt frá jólakett-
inum og síðan
Grýlu og Leppa-
lúða þar sem þau
undirbúa för drengjanna sinna þrettán í bæinn,
elda fyrir þá mat og þrífa af þeim leppana.
Þetta er eiginlega bara bók fyrir Selfyssinga,
enda koma fyrir í henni fyrirtæki í bænum og per-
sónur sem aðrir en íbúar bæjarins þekkja varla;
Pylsuvagninn og Sjafnarblóm og svo má telja. Það
er ekki mikið spunnið í söguna sjálfa en mynd-
irnar eru sumar vel heppnaðar.
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar
og þýddar barnabækur
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Klár strákur,
leyndarmál Sólar
og jólasveinar
Leyndarmálið „Mangalegar
myndirnar eru líka skemmti-
legar,“ segir m.a. um Seiðfólkið
eftir Salmson og Batista.