Morgunblaðið - 20.12.2014, Qupperneq 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Hrímland gerist að mestu íReykjavík, höfuðborgHrímlands, landi semhefur verið hernumið af
Krúnunni, Kalmar-herveldinu. Íbú-
arnir eru alla jafna látnir í friði,
enda sækist herveldið eftir seið-
magni sem það vinnur í verksmiðju
sinni í Öskjuhlíð. Sumir íbúanna
sækjast þó eftir frelsi, en mótmæli
eru kæfð í blóði
og eftir það hefur
folk hægt um sig
að mestu. Garun,
sem er huldu-
fólksblendingur,
og því hötuð af
huldufólki og fyr-
irlitin af mann-
fólki, heldur þó
andófinu áfram
með seiðmögnuðu veggjakroti, en
Sæmundur, fyrrverandi sambýlis-
maður hennar, er svo sólginn í fróð-
leik um eðli galdra að hann er að
tapa vitinu.
Það er ekki á hverjum degi sem
maður fær jafn kraftmikla og eft-
irminnilega skáldsögu og Hrímland
upp í hendurnar, með fullsköpuðum
furðuheimi með trúverðugum per-
sónum sem glíma við grimmileg ör-
lög.
Þessi magnaða og stórskemmti-
lega saga gerist á Hrímlandi sem er
eins konar blendingur af Íslandi
allra tíma, því innan um furðuverur
íslenskra þjóðsagna eru verur sem
Alexander hefur smíðað sjálfur, eins
hinir hrafnkenndu náskarar, og svo
ýmsar persónur úr Íslandssögunni.
Að sumu leyti minnir sagan á svo-
nefnt gufupönk, að öðru leyti á æv-
intýri eða vísindaskáldskap, en að
mestu er hún hreinræktuð furðu-
saga krydduð svartri kímni og
hrikalegum örlögum.
Bókin sækir mikið í þjóðsagnaarf
okkar en líka í aðrar áttir og atburð-
ir í nútímanum hafa líka sín ahrif –
til að mynda mætti lesa úr henni
skælda mynd af hruninu og eins
gagnrýni á það hvernig auðmenn
hafa sölsað undir sig náttúru-
auðlindir.
Stuttlega er drepið á söguþráð
bókarinnar ofar, en hann er talsvert
snúnari og aðalsnúningurinn kemur
undir lokin með hrikalegu uppgjöri.
Heimurinn sem bókin gerist í er
sérdeilis forvitnilegur og trúverð-
ugur innan ramma sögunnar og
fengur yrði að fleiri bókum sem nýta
sér sama ævintýralega umhverfið.
Alexander gefur bókina út sjálfur
og hun hefði eflaust orðið enn betri
ef hann hefði haft stöndugt forlag á
bak við sig. Með bókinni fylgir disk-
ur þar sem Árni Bergur Zoëga, fé-
lagi Alexanders í svartmálmssveit-
inni Carpe Noctem, snýr hughrifum
sínum af lestri bókarinnar í tóna.
Músíkin er afbragð, en mér fannst
þó betra að semja eigin hughrifa-
hljómkviðu við fyrsta lestur bók-
arinnar, þótt ég hafi leyft tón-
verkum nafna míns að hljóma við
annan lestur hennar.
Í sem stystu máli – Hrímland er
framúrskarandi frumraun stór-
efnilegs höfundar og mér er til efs
að eins kraftmikil skáldsaga hafi
komið út á árinu.
Morgunblaðið/RAX
Hrímland er framúrskarandi frumraun stórefnilegs höfundar og mér er til
efs að eins kraftmikil skáldsaga hafi komið út á árinu“, segir í bókadómi.
Skáldsaga
Hrímland bbbbn
Eftir Alexander Dan Vilhjálmsson.
Bókinni fylgir geisladiskur með tónlist
Árna Bergs Zoëga. Andlag, 2014.
ÁRNI
MATTHÍASSON
BÆKUR
Seiður og hélog á Hrímlandi
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
M A N D A R Í N A
S T Y R K TA R F É L A G L AMAÐ R A O G FAT L A Ð R A
Sölutímabil 5. – 19. desember
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Hafnarborg - Hafnarfirði
Húsgagnahöllin - Reykjavík og Akureyri
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Litla jólabúðin – Laugavegi
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þágu þeirra.
Sy ru sson Hönnunar hús
Síðumúla 33
HANGOVER Í PAKKANN
Hangover kr. 29.900,-Íslensk hönnun og framleiðsla